web log free Gæðingur Pale Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Gæðingur Pale Ale

stíll : Pale Ale
brugghús : Gæðingur brugghús
land : Ísland
alkóhól : 4.5 %
fyrst smakkað : 18.11.2011
smökkunarstaður : Reykjavík

3. bjórinn frá Gæðingi.  Um er að ræða pale ale.  Hann er fallegur í glasi gruggugur með þétta fína froðu sem gleður augað . Gruggið stafar af því að hann er látinn gerjast eftir átöppun og því er ger á sveimi í bjórnum.  Í nefi má finna grös, ögn sætu og mold.  Humlar ekki efst í huga samt.  Í munni er hann mildur, gosríkur, það er létt beiskja og hann er ögn þurr.  Ger og esterar koma lítið við sögu og því lítið um frútt og krydd.  Smávægilegt malt en afar lítið.  Fylling í meðallagi og eftirbragð ágætt.  Bjór þessi er skemmtileg viðbót í hina íslensku bjórfamelíu.  Hafði þó búist við öðruvísi upplifun, ég veit ekki hvað það er.  Engu að síður er ég sáttur við mjöðinn og lít tilhlökkunaraugum á komandi bjórtegundir frá Gæðingi.