|
Þ essi
bjór er jólabjór frá litlu dönsku brugghúsi í
Hróarskeldu. Bjórinn er bruggaður með enskt
sterköl sem fyrirmynd. Samkvæmt miðanum á flöskunni er
þetta öl kryddað með hunangi, múskati og kanil.
Mér fannst þessi lýsing lofa góðu og greip því eina
flösku með heim. Fyrst þegar ég smakkaði þennan bjór
2005 varð ég fyrir miklum vonbrigðum og gaf honum 2
krúsir, nú smakkaði ég hann aftur 2008 og þá er eins
og um allt annan bjór sé að ræða. Nú finn ég
heilmikið krydd bæði í nefi og á tungu...negull,
kanill og múskat. Gríðarlega skemmtilegt að
finna svona jóla jóla í bjór. Þetta er svo
annars mildur bjór með góða fyllingu og ljúfum
undirtón. Get vel mælt með þessum karli í ár amk
því líklega er erfitt að finna eins jólalegan bjór. |