|
Hér hélt ég að ég
væri að fara fá mér svona klassískan hveitibjór af belgískri
fyrirmynd á borð
við
t.d.
Hoegaarden eða álíka. Líklega var það nafnið
sem var að villa um fyrir mér, blanch er nefnilega oft notað
yfir hveitibjóra sem eru oft sagðir vera hvítir. Það
fer þó ekki milli mála, strax og maður opnar kauða þá mætir
manni grösugur, jurtakeimur en ekki hefðbundinn
hveitibjórskeimur. Í glasi er þó um mattan bjór að
ræða, eða svona allt að því, falleg froða myndast svo ofan
á. Í munni er svo um mjög þægilegan bjór að ræða með
miklum keim af humlum, grösum og ögn pínu sætu sem þó varla
greinist. Maltið kemur mjúklega inn og sopinn verður
fullur og þægilegur. Já þetta er sko aldeilis ekki
hveitibjór heldur þessi líka þrusu lager. Já þennan
mun ég sko prófa aftur |