|
Fuller´s
er breskt brugghús sem er að gera góða hluti.
Þeir brugga nokkuð gott úrval af bresku öli og lager.
Afar vandaður bjór og fullkomið fyrir þá sem fíla
enska ölið. Fullers Vintage Ale er flaggskipið
þeirra. Þetta er árgangsöl sem er breytilegt frá
ári til árs. Afar góður til geymslu og batnar
bara með árunum. Í þessum karli er þrímaltað
bygg og klassískir Fullers og Goldings humlar sem gæða
bjórin beiskju og lífi. Hann er vínlegur í nefi
og minnir á koníak. Í munni er mikill þróttur,
beiskja er þó ekki að fara með þetta því ristað sætt
maltið kemur sterkt inn á móti. Hann er afar
fullur í munn og mjúkur. Eftirbragð er dásamlegt
með ristuðu malti og karamellu. Þennan þarf
maður að smakka árlega held ég svei mér þá. |