|
Þessi
karl kemur úr svo kallaðri Past Masters línu Fullers
sem eru bjórar bruggaðir eftir gömlum næstum gleymdum
uppskriftum brugghússins. Past Masters XX Strong
Ale er virkilega vandaður bjór. Í nefi er vanilla, hunang, humlar og
piputóbak. Í munni er hann mikill, þéttur, vel humlaður, ögn hunang í
bakgrunni og mikið ristað malt sem gefur þægilegan sætutón. Minnir um
margt á amerískan double IPA en auðvitað vantar nokkuð
uppá. Maður verður áfengisins var án þess að að
trufli heldur gefur það notalegan hita um skrokk og
sál. Sopinn
fjarar svo út í sætan þéttan maltkeim með dálítilli
beiskju í bland. Þetta er virkilega góður og
öflugur bjór.
|