web log free Fullers Bitter
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Fullers London Porter

stíll :

Enskur Porter

brugghús :

Fuller's Brewery

land :

England

alkóhól :

5.4 %

fyrst smakkað :

13.3.2011

smökkunarstaður :

Reykjavík

Ég er aðeins farinn að fikta við enska ölið. Lét  þess vegna loksins verða að því að bragða á þessum þekkta porter frá Fullers.  Porter hefur hingað til ekki verið í uppáhaldi hjá undirrituðum Bjórinn kom mér skemmtilega á óvart.  Kolsvartur í glasi með fallega þykka froðu.  Í nefi eru ögn ristað mælt og súkkulaði.  Í munni er þetta nokkuð mjúkur sopi í mildari kantinum.  Þægileg sæta frá ristuðu maltinu, ofsalega fínstillt beiskja og svo nokkuð áberandi súkkulaði í bakgrunni með kaffibland.  Virkilega þægilegur bjór.  Gaman að vita af þessum í vínbúðunum hér.  Endilega prófa þennan t.d. með súkkulaðiköku.