web log free Fullers Bitter
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Fullers Chiswick Bitter

stíll :

Enskur Bitter

brugghús :

Fuller's Brewery

land :

England

alkóhól :

3.5 %

fyrst smakkað :

7.11.2010

smökkunarstaður :

Reykjavík

Ég er lítið hrifinn af ensku öli svo ótrúlegt sem það hljómar.  Ég hef þó verið að gefa þeim séns undanfarið.  Rak augun í þennan frá Fullers í ÁTVR og ákvað að skoða hann nánar, líklega helst vegna humlana á merkimiðanum.
Þetta er annar fallegur bjór, dálítið koparlitaður með látlausa froðu.  Nettur í nefi, humlar, grös og huggulegheit.  Humlarnir eru blanda af Northdown og Challenger og koma vel út.  Í bragði er þetta mjög léttur og þægilegur karl, vissulega með ögn beiskju og humlum en furðulega lítið miðað við það sem ætla mætti.  Hann er aðeins 3.5% í alkóhóli og því er auðvelt að drekka mikið af honum án þess að skemma fyrir.  Já allt í allt nettur, bragðgóður lager sem mætti þó vera talsvert meira humlaður