|
Fyrsti
hveitibjór Íslands kemur frá Ölvisholti. Um er
að ræða fallegan kristaltæran síaðan hveitibjór með
fína mynduga froðu. Í nefi má finna ögn
perur...lofar góðu. Í munni skortir þó
eitthvað, hann minnir ekki mikið á ale og það vantar
að mínu mati eitthvað "fútt" í karlinn, t.d.
ávaxtakeiminn sem oft má finna í hveitibjór.
Engu að síður er þetta afar þægilegur bjór, mildur,
léttskrokka og afar svalandi. Eftirbragð varir
skammt. Eins og ég segi ljómandi góður
"session" en mætti vera ögn flóknari samsetning.
Hentar vel á sólpallinum, yfir grillinu eða með t.d.
sushi, fiskmeti eða fersku sallati. Sé t.d.
fyrir mér sallat með ljúfum fetaosti, ólifum,
klettasallati, kapers ofl djúsí. Einfalt, ef
svala skal þorsta í bjór, þá er það bara þessi sem
kemur til greina. |