Fregnir af brugghúsi
------oOo-----
|
|
20.8.2009 - nIcebrew í Rússneskri Rúllettu!. Nú er loksins komið að því, bruggun fyrsta Rússneska Imperial Stoutsins hjá brugghúsinu (26.7.09). Þar sem þetta hefur ekki verið reynt áður, þá erum við bara að skjóta í myrkri eða taka eins konar rússneska rúllettu á þetta. Nafn bjórsins er einnig dregið af þessari tilraun okkar en bjórinn mun heita Russian Roulette Imperial Stout og mun vonandi verða um 9% að styrkleika. Hugmyndin er að þetta verði stout af sætari gerðinni og með súkkulaðikeim enda munum við setja muldar kakóbaunir og vanillustöng í seinni gerjunartank. Spennandi verkefni. Annas hefur verið dálítil lægð hjá brugghúsinu að undanförnu, eftir að Sumarbjórinn myglaði hefur bruggmeistarinn dálítið misst móðinn en með hækkandi sól og vonandi góðum rússneskum imperial stout mun þetta vonandi lagast! |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
| 9.8.2009 - Frá mildum amrískum amber í snarpann brown ale. Það gerðist dálítið skemmtilegt með bjórinn okkar Simple nIce Ale. Já ég smakkaði hann núna um daginn, 4 mánuðum eftir átöppun og viti menn, bjórinn hafði alveg breytt um karakter...hann bragðast nú bara eins og hinn sæmilegasti brown ale. Já gaman að þessu. Ég held ég breyti nafninu í Simple nIce Brown Ale og næst þegar ég brugga kauða mun ég bíða með að bjóða hann fram í 4 mánuði. Já skemmtilegt! Fyrir þá sem ekki þekkja þá er brown ale enskur stíll, oftast er rauður eða brúnn að lit. Oftast er minna alkóhól en í t.d. porter og fylling er létt til miðlungs. Bjór þessi hentar vel með eplaböku, svínasteik með brúnni sósu, cheddar osti, nautasteik og grillmat t.d. | |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
7.8.2009 - Gríðarlega góður stout. Já nú er gaman hjá nIcebrew, ég smakkaði nefnilega Imperial Stoutinn okkar sem nú er kominn í seinni gerjun. Þó goslaus hafi verið þá var hann silkimjúkur, með léttum reyktum keim í bakgrunni, kaffikeim og ögn sætu ummm. Virkilega spennandi. Svo bætti ég út í gertankinn, kaffibaunum frá kaffitár (espresso), muldum súkkulaðibaunum og vanillustöng. Áður en ég setti þetta útí lét ég þetta blotna upp í Havana Rommi (40%) svona til að reyna að drepa það helsta sem gæti verið á þessum hráefnum. Ummm vona að þetta gefi meiri súkkulaðikeim í lokin, hlakka gríðarlega til. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
1.7.2009 - Hjúkkur Fíla Skítugt Leyndarmál. Já nIcebrew fékk gesti á dögunum alla leið yfir hafið mikla frá Íslandi. Það voru þau Ólína ofurhjúkrunarfræðingur (Florence Nightingale okkar Íslendinga) og Guðmundur Bergkvist maðurinn hennar sem að mörgum er talinn Hitchcock okkar tíma. Þau hjónin tóku púlsinn á framleiðslu okkar og var það klárlega Monks Dirty Litle Secret sem átti bragðlauka hjúkkunnar alla. Já bjórinn kom reyndar furðulega vel út enda hefur hann nú þroskast á flöskum í yfir 4 mánuði. Ólína mælir klárlega með munknum okkar fyrir alla og þá sérstaklega hjúkkur. Ólína vill meina að góður nIcebrew munkabjór jafnast á við bestu þunglyndislyfin á markaðnum og Ólína veit sko hvað hún syngur í þeim málum verandi ein fremsta hjúkrunarkona landsins. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
1.7.2009 - Sumarbjórinn myglaður? Það er eitthvað undarlegt að gerast með sumarbjóinn okkar. Það virðist vera komin mygla í hann eða eitthvað annað loðið. Ég smakkaði þó á honum (fleytti myglunni ofan af) og lofaði hann bara nokkuð góðu. Hefði kannski átt að halda áfengismagni neðar. Sjáum hvernig þessi bjór eldist |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
28.5.2009 - Sumarbjórinn kominn í gerjun. Þann 26. hóf ég bruggun á sumarbjórnum okkar Beer Bellys BBQ Beer sem er hveitibjór bruggaður með alúð og ögn af kóríander ásamt heilmikið af Ylli eða Hyldenblomst eins og Danir kalla plöntuna. Þetta verður spennandi karl en hveitibjór er eins og margir vita einn besti svaladrykkur á heitum sumardegi. Ég ákvað svo að stilla áfengismagni í hærra laginu fyrir hveitibjór til að gera hann ekki algjörlega að konubjór. Stefnt er á 6% ca. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
Icelandic Poverty Aid The Next Step 16.5.2009 - Tær snilld. Já ég smakkaði þennan núna í dag eftir nokkurra daga þroskun á flöskum bara svona til að tékka á honum. Ég er bara ansi sáttur, nú eru humlarnir komnir meira upp (hærra IBU) sem er fínt og ég er með simcoe humla núna í aðalhlutverki. Þeir eru sko að virka vel. Ég held að ef þessi heldur sínu striki þá verði þetta minn besti bjór til þessa! |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
Bjór frá nIcebrew hefur nú náð frá litla DK alla leið norður á Akureyri Ísland. Já þar er nefnilega lítil bjórbumba alltaf klár í slaginn, tilbúin að smakka og kveða upp dóma sína. Já þar býr nefnilega Óli sem er í raun sá maður sem fyllti mælinn minn hvað varðar að hefja bruggun heima við. Óli er enn fremur sjálfur að fikta við bruggun og svo hefur hann lagt mér lið t.d. við bruggun Three Headed Monster Ale. En Óli fékk sem sagt einn vel þroskaðan Icelandic Poverty Aid og líkaði svona líka vel við. Hér er það sem Óli segir :
Ég dreif fram einn Iceland Poverty Aid (úr batch-i 2) og opnaði hann. Ég tók
strax eftir góðri og mikilli kolsýru og hellti honum í fallegt öl glas frá
Nörrebro. Liturinn eins og góðan IPA sæmir (10° SRM giska ég á) og hausinn var
alveg stjórnlaus, náði alveg upp á barm jafnvel þó að ég hafi hellt fremur
rólega. Hausinn var hvítur og fallegur með nokkrum loftbólum. Ilmurinn var
greipkenndur og vann á eftir því sem |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
2.4.2009 - Aprílgabb - Já það tóku víst nokkrir eftir þessari frétt í gær og sérstaklega vegna þess að sama gabb var á Visir.is en fréttamaður nokkur þar hafði heyrt af aprílgabbinu á Bjórbókinni og hér á nIcebrew og vildi fá að nota gabbið á Vísi. Það voru margir sem lásu fréttina því teljarinn okkar sýndi verulega aukningu í heimsóknum. Þannig fóru um 1000 manns inn á síðuna. Enn fremur var fréttin mest lesna fréttin á síðunni og mest senda féttin. Svo virðist sem einhver hafi látið glepjast því að í aðspurður segist Ari Blöndal Eggertsson, verslunarstjóri í Vínbúðinni í Kringlunni að nokkuð hafi borið á því að menn hafi verið að spyrjast fyrir um nIcebrew bjórinn. Sjá hér! Ég vil bara benda á að þetta var jú auðvitað aprílgabb og vona ég að menn fyrirgefi okkur þetta uppátæki, en hins vegar er hugmyndin alls ekki svo galin og hver veit hvað gerist í framtíðinni! |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
21.3.2009 - Páskabjórinn kominn af stað - Páskabjórinn okkar "Easter Bunny's Memorial Brew" fór í bruggun í dag og er nú kominn í gerjun. Vonandi verður hægt að smakka á karlinum í kringum páskana en annars er ca mánuður í að hann verði tilbúinn. Líklega verður bara um eina gerjun að ræða og svo töppun á flöskur. Stíllinn er nokkurn veginn í átt að Maibock. Nánar um páskabjór má lesa hér. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
17.3.2009 - Monsterið tilbúið - Já það er ekki mikið hægt að segja svo sem. Three Headed Monster Ale er nún tilbúið og smakkast dásamlega. Vandinn er bara sá að ég hef þegar gengið hart á lagerinn þannig að það eru bara nokkrar flöskur eftir. Ég held að bjórinn hafi verið tilbúinn fyrir amk 2 vikum síðan því hann bragðast jafn vel nú og þá. Svona er nú það. |
|
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
6.3.2009 - Monsterið smakkað - Atli kom í heimsókn til að smakka Monsterið sem nú hefur legið á flöskum í tvær vikur. Það er óhætt að segja að við vorum mjög ánægðir og spenntir með árangurinn. Gríðarlega þétt og ljúf froða ofan á rauðbrúnum bjórnum kom manni strax í gott skap. Í nefi er svona líka ljúfur keimur þar sem lakkrís kemur vel fram ásamt blómugum humlum og karamellu. Í munni er þetta þéttur mikill bjór með ljúfan feitan skrokk. Beiskur og kitlandi, með smákökuyfirbragði sem stafar af maltinu (cara amber og red), karamellu og svo léttbeiskum lakkrískeim í restina. Nammi namm. Sælgæti bjóráhugamannsins er hér með komið í heiminn. Líklega mun bjór þessi verða flaggskip nIcebrew og mun án efa verða bruggaður aftur áður en um langt líður. Já það var mikil kátína í brugghúsinu þennan dag. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
1.3.2009 - Monks Dirty Little Secret tilbúinn- Bjórinn er dökkbrúnn eða svartur með nokkuð vel skapaðan froðuhaus sem varir út bjórinn. Í nefi er mikil sæta, mikið malt, þurrkaðir ávextir, karamella, og kaffi. Í munni er áberandi "belgískt" bragð. Hér er það hið belgíska ger sem skapar réttu samsetninguna en humlarnir German Northern Brewers og Hallertauer Hershbrucker gera einnig sitt. Það er þétt og ljúft bragð með nokkuð flóknu yfirbragði. Sæt karamella, kaffikeimur og dökkt súkkulaði í bland við sæta ávexti. Eftirbragð er gríðarlega ljúft og varir lengi. Fylling er meðal til mikil. Já bjór þessi er hentugur huggubjór á síðkvöldi eða með sætum eftirrétt. Ég er bara nokkuð sáttur við útkomuna. Að lokum vil ég óska landsmönnum til lukku með afmæli bjórsins í dag. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
18.2.2009 - Monsterið komið á flöskur - Hið
þríhöfða skrímsli eða The Three Headed Monster Ale er nýtt
tilraunaverkefni hjá nIcebrew. Um er að ræða samvinnuverkefni þriggja snillinga
úr Bjórmenningarfélaginu Kidda sem
hafa skapað dálítið sérstakt, dálítið
einstakt og dálítið ógnvægnlegt, nefnilega bjór og ekki bara einhvern bjór!
Bjór þessi ber nafnið The Three Headed Monster Ale og er þannig úr
garði gerður að hver og einn eftirtalinna snillinganna hefur valið sitt hráefni í bjórinn og enginn
veit hvað hinn “hausinn” valdi fyrr en uppskriftin var saman komin. Þ.e.a.s ég (nIcebrew) sé um humlana,
Atli fagursælkeri sér um að velja gerið sem og auka bragðefni og Óli
hjá The Desert Island Brewery sér um maltið. Á þennan máta hefur Óli
áhrif á alkóhólmagnið, lit, fyllingu og auðvitað hluta af bragði á meðan
nIcebrew sér um biturleikann (IBU), angann og auvitað stóran hluta bragðsins og
loks hefur Atli óbeint áhrif á alkóhólmagn, angann sem og bróðurpartinn af
bragðinu. Bjórinn er svo ekki bara venjulegur bjór því hann mun búa
yfir heilmiklum lækningarmætti
sem rekja má til lækningarplöntunnar Illicium verum eða
Stjörnuaniss á okkar máli. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
| 17.2.2009 - Munkurinn svakalegur - Nú hefur Monks Dirty Little Secret legið í flöskum í tvær vikur. Hann er ekki tilbúinn því planið hljóðar upp á mánuð en ég stalst þó til að smakka karlinn í dag. Þetta var gríðarlega fallegur bjór í glasi...dimmrauður og tær með eggjahvítu litaðan þéttan langvarandi froðuhaus. Það er góð fylling í honum, frábært eftirbragð og heilmikil sæta en þó með réttum skammti af humlum til að jafna þetta allt saman út. 'Eg er bara gríðarlega ánægður með þetta og hlakka mikið til að smakka aftur eftir tvær vikur. | |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
4.2.2009 - Monsterið í seinni gerjun - Three Headed Monster Ale er nú kominn í seinni gerjunartank. Ég smakkaði og mældi kauða í leiðinni og mældist hann aðeins 6% í abv sem er ögn minna en áætlunin var. Bjórinn er rauður eins og stefnt var að og talsvert bitur en lakkrísinn er frekar látlaus. Bjórinn bragðast hins vegar fantavel..í raun svakalega vel og gæti hér orðið besti bjór brugghúsinns ef vel gengur. Ég bætti smá sjörnuanis út í bjórinn með von um ögn lakkrískeim, það gerir hins vegar ekkert til ef það gengur ekki eftir því bjórinn virðist ætla að verða gríðarlega góður. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
30.1.2009 - Munkabjórinn kominn á flöskur - Nú er bara að bíða eftir að hann verði tilbúinn, eftir ca 3 vikur eða svo...kannski mánuð. Mæling gaf 7.1 % abv. Í bragði er hann þegar farinn að minna talsvert á triple...ja eða í raun frekar á dubbel. Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr flöskuþroskuninni. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
25.1.2009 - Three Headed Monster Ale kominn í gerjun - Bruggun hófst í dag og gekk mjög vel. Það var reyndar smá vandamál með Stjörnuanisinn því magnið var að vefjast fyrir okkur. Það var þó tekin ákvörðun fyrir rest. Notuðum eitt fræhylki fyrir 10 mín suðu og svo annað síðustu 5 mínoturnar já ég segi "við" því Óli var með mér hérna í eldhúsinu í gegnum vefmyndavélina. Liturinn endaði nokkurn veginn eins og planlagt var, koparrauður og Óli var sáttur. Humlarnir dönsuðu um allt eldhúsið og svo voru þeir áberandi í bragði eftir suðuna, Freysinn ánægður. Reyndar kom lítið fram af Stjörnuanisnum en þó má greina hann í eftirbragði sem og angan. Það er þó mjög sennilegt að lakkrískeimurinn ágerist við þroskun og þá að Atli verði líka sáttur. Já allt í allt mjög spennandi bjór eins og komið er. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
16.1.2009 - Monks Dirty Little Secret kominn í seinni gerjun - Gerjun hefur gengið vel, bjórinn var fluttur yfir á seinni gerjunartank í dag og ég stalst til að smakka í leiðinni. Bjórinn er fallegur, brúnn og nokkuð tær. Mikil sæt lykt, ávextir og sætt malt. Bragðast bara nokkuð vel, heitur af áfengi og vel frúttaður. Góð fylling. Já ég held að þetta gæti vel orðið góður bjór. Mæling sýnir 7.1 % (OG 1026) sem er bara nokkuð gott. Gæti orðið hærra en ef ekki þá er þetta fínt. Stefnt er á gerjun í tvær vikur eða þrjár til viðbótar og svo átöppun. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
10.1.2009 - nIcebrew bruggar sinn fyrsta Trappist bjór. Tja í raun væri rangt að kalla þetta Trappist (munkabjór) þar sem okkur skortir sjálfsagann og skirlífið sem munkarnir hafa svo gott vald yfir og svo búum við jú ekki í klaustri...eða ekki í þeim skilningi amk. Þetta er því bjór í sama stíl og Trappistinn og kannski ögn betri ef niðurstaðan verður eftir áætlun. Það er ekkert leyndarmál að bruggmeistarinn, Freysinn hefur mikið dálæti á belgískum bjór og því ekkert skrítið að þessi stíll verði fyrir valinu. Reyndar er það svo að Freysinn komst að dálitlu í sinni síðustu ferð til Belgíu nefnilega afhverju munkabjórinn er svona svakalega góður. Leynilega hráefnið sem aðeins munkarnir í Belgíu eru nógu kjarkaðir til að nota er lykillinn. Þar sem hér er ekkert aldurstakmark þá ætla ég ekki að nefna það hráefni hér og einnig til að koma í veg fyrir samkeppni, en ég get þó sagt að eftir að ég komst að þessu þá hefur dregið talsvert úr drykku minni á belgískum bjór amk. Nóg um það, bjórinn verður vonandi tilbúinn eftir ca 2 mánuði ef allt gengur eftir. Nafnið mun verða "Monks Dirty Little Secret". |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
5.1.2009 - Icelandic Poverty Aid batch 2 kominn í gler - Já átöppun lokið, útkoman um 8 L á flöskum. Nú tekur við þroskun á flöskum í ca 2 til 3 vikur og svo drykkja. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
2.1.2009 - Jólabjórinn enn að þroskast - Eitthvað vantar enn upp á jólabjórinn...hmmm kannski er það vegna þess að Bjarne er enn ekki búinn með myndina þó hann sé samt kominn vel á veg. Bjórinn er samt fallegur í glasi, jólarauðbrúnn með hvítan snjóhatt á höfði. Vel kolsýrður og með góða fyllingu, og svo áfengismagn sem hitar á þægilegan máta. Vandinn er plastbakgrunnur sem loðir við hann í nefi og munn. Þetta er eitthvað sem ég upplifði líka í bjór nr 1 og 2 en sem svo hvarf með tímanum sem tákn um óþroska. Bjórinn er annars vel kryddaður í nefi , sætur með smá negul og humlum og svo snefil af plasti. Í munni er fylling góð svo má finna beiskju og humla í bland við krydd. Jólakrydd? Eitthvað á borð við negul og piparkökur og svo bitran mandarínubörk en svo smá plast alveg í blárestina. Þetta er held ég á réttri leið en ekki alveg komið samt. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
28.12.2008 - Jólabjórinn enn að þroskast - Jólabjórinn okkar, The 14th Santa Clause er enn ekki tilbúinn. Það er enn dálítið plast í nefi og munni en þó talsvert minna en fyrir 2 vikum síðan. Nú er einnig komin froða í hann og kolsýra, bjórinn er því á réttri leið. Liturinn er fallegur, rauðbrúnn og áfemgismagn viðeigandi. 7.0%. Við athugum bjórinn næst aftur eftir áramótin, vonandi verðu hann þá orðinn góður. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
15.12.2008 - Poverty Aid, bjór fyrir listamenn - nIcebrew fékk góðan gest í heimsókn þann 5. til 8. desember. Það var listamógúllinn, dansgúrúið og danshöfundurinn Lovísa Ósk Gunnarsdóttir dansari í Íslenska dansflokknum sem rak inn nefið til okkar. Lovísa fékk að smakka Icelandic Poverty Aid og líkað afar vel við. Það er því okkar sönn ánægja að geta sagt að bjórinn okkar gengur vel í listamenn líka. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
6.12.2008 - Poverty Aid eldist vel - Bjór okkar nr 2, Icelandic Poverty Aid er að koma mjög vel út. Við erum enn að smakka karlinn og hann verður betri og betri með tímanum. Nú er þetta orðinn alvöru bjór, hreinn og tær með flókin karakter. Vínlegur og öflugur. Já ekkert plastbragð eða aukabragð. Það verður klárlega lagt í annað batch af þessum á næstu dögum. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
3.12.2008 - Jólabjórinn kominn á flöskur - Fjórtándi jólasveinninn var settur á flöskur í dag eftir rúma 2 vikur í seinni gerjun og þar áður 10 daga í fyrri gerjun. Nú mun bjórinn standa á flöskum til jóla og reiknað er með að hann verði hæfur til drykkju 24. des. Það var ekki bara bjór sem fór í flöskurnar í dag því á meðan á átöppun stóð var leikin jólatónlist af bestu gerð og vonandi skilar það sér eitthvað ofan í bjórinn. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
|
|
15.11.2008 - Jólabjórinn kominn í seinni gerjun - Jólabjórinn okkar, The 14th Santaclaus er nú kominn í seinni gerjunartankinn og er þar með fyrsti bjór brugghússins sem fer í gegnum tvær gerjanir. Mæling á alkóhólmagni gaf 7% sem er ljómandi, einmitt það sem stefnt var að. Svo stalst maður einnig í að smakka karlinn. Já ansi beiskur, talsvert kryddaður, negull og ögn kanill en lítið eða ekkert bar á mandarínu. Bjórinn er dökkrauðbrúnn eins og stefnt var að. Bjórinn á vonandi eftir að taka breytingum í gerjuninni og svo á flöskum en samt þá finnst mér vanta mandarínukeim. Ég er því að spá í að sjóða niður mandarínur og bæta út í á þessu stigi. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() ![]() |
15.11.2008 - Kiddi ánægður með
FICPA - Hluti af
bjórmenningarfélaginu Kidda smakkaði First Icelandic Crisis Pale Ale
í dag og líkaði vel. Já Kiddi fann ekki plastbragðið sem ég fann í
gær. Kiddi var í heild sinni mjög ánægður með bjórinn. Að þessu
sinni voru það 5 Kiddar sem smökkuðu bjórinn og allir sögðust vilja kaupa
eða drekka þennan bjór aftur. Þetta eru góðar fréttir fyrir nIcebrew
og bruggmeistarann sem var farinn að hafa verulegar áhyggjur af þroska
bjórsins. Sjálfur smakkaði ég á bjórnum og þar var ekkert plast, undarlegt en
gaman. Kiddi fékk enn fremur að smakka bjór nr 2, Icelandic Poverty Aid (I.P.A), þó hann hafi aðeins legið í viku á flöskum, og líkaði vel, reyndar það vel að nIcebrew seldi fyrsta Icelandic Poverty Aid bjórinn sinn í gær. Þetta eru góðar fréttir fyrir nIcebrew því IPA bjórinn var í raun fyrsti bjórinn sem bruggaður var upp úr eigin höfði Freysa bruggmeistara á meðan FICPA var að mestu fengin úr uppskrift af netinu. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() ![]() |
14.11.2008 - Síðasti FICPA bjórinn farinn - já Valli vinur minn og eigandi og svo ehf festi í dag kaup á síðustu tveim flöskunum af First Icelandic Crisis Pale Ale fyrir litlar 150 kr danskar. Já þar gerði Valli góð kaup því nIcebrew mun aldrei aftur framleiða þennan bjór og líklega því um safngrip að ræða í framtíðinni. Til lukku með þetta Valli minn, eigðu góðar stundir með þessum skemmtilega og dálítið dularfulla bjór. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
14.11.2008 - First Icelandic Crisis Pale Ale tilbúinn en ekki eins og ætlunin var. Nú er FICPA loksins tilbúinn, eftir 3 vikur á flöskum. Bjórinn var smakkaður í gær og urðu vonbrigðin nokkur. Bjórinn bragðast ágætlega í heild sinni en glöggir menn geta svo fundið einhvern undarlegan gervikeim sem minnir dálítið á plast. Þetta plast kemur einnig fram í nefi, mjög undarlegt og ansi svekkjandi því bjórinn var mjög góður eftir aðeins 3 daga á flösku og ekkert sem minnti á plast þar. Það er því eitthvað sem hefur klikkað en spurningin er bara hvar. En svona er nú það, menn segja að fyrstu 6-7 bjórarnir sem maður bruggar séu vondir, það get ég reyndar ekki sagt því bjórinn er langt frá því að vera vondur. Ef einhverjir reynsluboltar þarna úti lesa þetta og hafa hugmynd um hvað fór úrskeiðis þá er ég ein eyru :) (bjor@bjorbok.net). Bjórbókin, einn erfiðasti dómarinn í heimi bjórsins hefur einnig sagt sína meiningu. Dóm Bjórbókarinnar má lesa hér. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
6.11.2008 -
Jólabjórinn
kominn í gerjun. Jólabjórinn 2008 er kominn af stað og hér í
brugghúsinu ber
andrúmsloftið þess merki. Mandarínur, kanill, negull og
karamella, svífa hér um loftið og gæla við skilningarvitin.
Já bjórinn okkar "The 14th Santaclaus" er jólabjór
sem á að gera góð jól enn betri ef allt gengur upp. Í uppskriftina
valdi ég bestu fáanlegu hráefni og krydd sem tengja má við jólin. Já það eru
svo mikil jól í þessum karli að jafnvel Skröggur gamli kæmist í organdi jólaskap ef
hann kæmist í þennan. Þetta er dökkur bjór, bruggaður með dökku
súkkulaðimalti og púðursykri sem gefa dökkan lit og alveg mátulega fyllingu
og svo Cara-Amber malti sem gefur rauðan jólablæ í bjórinn. Svo
notaði ég negul, kanil, mandarínubörk, ferskt danskt greni og snefill af
piparkökukryddi (allrahanda) til að kalla fram rétta ilminn.
Allt er þetta svo bruggað á mjög sérstakan máta, því að í jólabjór á að vera
jólastemning og til þess að tryggja hana voru vel valin jólalög með Baggalút
(mikilvægast Kósíheit Par Exelens) spiluð á meðan bjórinn var soðinn. Til að
kóróna svo þetta allt saman sauð ég saman við humlana 10cm skeggbút frá 14.
jólasveininum sem ég komst yfir við ramman leik í fyrra. Ólíkt því sem við
flest höldum þá eru jólasveinarnir okkar nefnilega ekki bara 13 heldur 14.
Ástæða þess að við vitum lítið um 14. jólasveininn er sú að nú á dögum er
honum bannað að koma til byggða sökum óstýrilátrar hegðunar sem ekki þykir
lengur viðeigandi á þessum tímum. Karlinn sem ber nafnið
Drykkjurútur, hugtak sem flestir kannast reyndar við frá daglegu tali
okkar Íslendinga, er nefnilega agarlega drykkfelldur sveinn. Árlega
stelst hann nefnilega í bjórbruggið hennar Grílu og þá er eins gott að verða
ekki á hans leið því karlinn verður ansi ölvaður fyrir vikið. Skeggið
hans tekur svo sinn skerf af ölinu og liggur svo í því allt árið þar til
næsta skvetta bætist við. Það er því afar sérstakur keimur og
dularfullur sem leynist í skeggi karlsins og það er einmitt þetta sem gerir
bjórinn okkar hjá nIcebrew svona einstakan. En það er ekki auðvelt að
ná í afleggjara og því er um mjög sjaldgjæft hráefni að ræða. Það er von okkar að bjórinn komi vel út, og að unt verði að drekka hann yfir jólin þó svo að hann hafi verið settur heldur seint af stað. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
4.11.2008 - Jólabjórinn í smíðum. Nú fer alveg að koma að því að jólabjór nIcebrew verði settur af stað. Það er reyndar orðið ansi seint en hvað um það, það verður samt gaman að smakka hann til yfir jólin og hver veit nema hann verði tilbúinn 24.12.08. En ég er svona að hugleiða uppskriftina og þá aðallega auka krydd. Það verða amk mandarínur og mikið af þeim og svo jólakrydd á borð við kanil, múskat, negul og svo jafnvel furunálar. Hmmm ég þarf að passa að hafa dálítið hátt IBU svo ekki verði úr sykursætur gosdrykkur. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
30.10.2008 - Fyrsti bjór nIcebrew seldur. Já Atli Kolbeinsson kom við hjá mér í dag og fékk fyrstur allra utanaðkomandi að smakka First Icelandic Crisis Pale Ale og hann var svo heillaður að hann keypti bjórinn á 50 danskar kr (það er ansi há upphæð í íslenskum kr í dag). Já þar með eignast Atli fyrsta bjór sem nIcebrew framleiðir. Við óskum Atla til lukku með þetta. Taka skal fram að bjórinn var alls ekki tilbúin þegar hann var smakkaður (aðeins þrír dagar á flösku). |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
30.10.2008 - First Icelandic Crisis Pale Ale þrusu góður. Já við ákváðum að smakka bjórinn eftir aðeins 3ja daga þroskun á flösku. Hugmyndin var nú bara að smakka núna og taka statusinn til að geta metið breytingar eftir 2 vikur á flösku. Útkoman kom okkur virkilega á óvart. Það var komið talsvert gos í bjórinn og hann myndaði fallega þétta froðu í glasinu. Litur var ögn mattur og koparbrúnn. Í nefi afar þægilegur frískandi keimur með brenndum sykri, ljúfum amarillo humlum, sítrus og mandarínu. Í munni mjúkur og fullur með þægilega sætu en fína beiskju á móti sem þó er talsvert minni en ég áætlaði mér. Passar ekki alveg við 50 IBU. Það má finna brendan sykur, ljúfa karamellu frá Cara Crystal bygginu og svo létta sítrus beiskju frá Cascade humlunum. Svo er þessi ljúfi mandarínukeimur. Eftirbragð er svo langt og gott. Já ég er virkilega sáttur við útkomuna og eftir aðeins þrjá daga á flöskum. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
27.10.2008 - Fyrsti bjór nIcebrew kominn á flöskur. Já First Icelandic Crisis Pale Ale fór á flöskur í dag. Afraksturinn voru 7.5L af öli og af smakkprufum að dæma lofar þetta góðu. Miðinn var svo settur á flöskurnar sama dag en þó eftir ögn breytingar. Já Atli kom við hjá mér í gær og gerði athugasemdir við hvítan bakgruninn. Ég fór þá að fikta og útkoman var þessi litur sem mér finnst gera IPA stílnum betri skil. |
| --------------------------------oOo------------------------------ | |
![]() |
23.10.2008 - Næsti bjór er kominn af stað, þ.e.a.s bjór nr tvö í röðinni. Nafnið er líka komið á karlinn og er hann sem fyrr bruggaður í anda India Pale Ale stílsins og mun heita Icelandic Poverty Aid. Bjór þessi er örðuvísi en sá fyrri vegna þess að nú fór ég talsvert lausum höndum um uppskriftina. Ég reiknaði sjálfur út humla og malt og valdi aðrar spennandi humlategundir. IBU er áætlað um 45 og vona ég að reikningar mínir hafi staðist svo svo verði. |
| ------oOo----- | |
![]() |
20.10.2008 - Merkimiðinn tilbúinn fyrir First Icelandic Crisis Pale Ale. Ég fékk nágranna minn Bjarne sem er ansi lunkinn teiknari til að teikna fyrir mig sökkvandi Ísland sem tilvísun til ástandsins heima á Íslandi. Þetta tókst bara ágætlega hjá karlinum, á myndinni má m.a. sjá eldfjall sem spúir peningaseðlum upp í loftið og svo má sjá íslenskar krónur sökkva í sæ.
|