web log free Fransizkaner
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Fransizkaner Hefe Weissbier

stíll : Þýskur hveitibjór - Weissbier
brugghús : Spaten-Franziskaner-Bräu (InBev)
land : Þýskaland
alkóhól : 5.0%
fyrst smakkað : 02.10.2004
smökkunarstaður : Munhcen þýskalandi - OKTOBERFEST

Þar sem ég var staddur á Oktoberfest þá var kannski ekki ofarlega í huga að drekka nokkuð annað en oktoberfestbjór þann sem stendur mönnum til boða.  Hins vegar hafði ég lengi vel haft augastað á þessum rómaða hveitikarli og ég sé ekki eftir að hafa látið til leiðast, þetta er magnaður weissbier. Í glasi er þetta ægifagur bjór, gulhvítur og mattur með fallegan froðuhatt í glæsilegu glasi sínu.  Bjórinn ilmar eins og hveitibjór með sætum frúttkeim og krydduðum perum og ilmvatni.  Á tungu er þetta sér í lagi ferskur bjór með fullt af perum ásamt sítrónu/engifer forgrunni.  Fjarar út með löngu eftirbragði með grænum eplum.  Þessi gríðarlega svalandi hveitibjór getur bara ekki klikkað.