|
Þetta
er snilldar brugghús, heimasíðan ber þess merki að
bruggararnir eru dálítið á flippuðu nótunum og hugsa
út fyrir rammann. Bjór þeirra ber þess einnig
merki, því hann er óhefðbundinn og einstakur. Ég
hef áður smakkað Horn
Dog Barley Wine og
Double Dog Double Pale.
Þessi karl er rauðbrúnn í glasi með netta létta froðu.
Í nefi er mikið að gerast, rúsínur, sveskjur, og
mikill sætur keimur og hressandi beiskja. Í
munni er þetta mjög mikill bjór með mikinn skrokk og
notalega mýkt. Sætur á tungu með vínlegum blæ og
sítrus.
Karamella og smá lakkrís en þó ekki mikið og svo
beiskir brakandi humlar og gríðarlega gott jafnvægi
við brennt maltið. Mjög vandaður bjór og
heilsteyptur með eftirbragð sem undirstrika gæðin.
Mæli klárlega með þessum fyrir IPA unnendur |