|

Þessi ber jafn langt nafn og hann er sterkur í
alkóhóli svei mér þá. Hér er enginn barnabjór á
ferð. Vissulega er þetta IPA, það finnst langar
leiðir um leið og maður tekur tappan af
flöskunni. Gríðarleg lykt með beiskum ertandi
humlum..eyrnamergur eins og vera ber. Í munni er
bjórinn ansi líflegur með svakalegan kropp og flókna
samsetningu. Sterkt mikið áberandi greipaldinn
bragð og miklir bitrir humlar. Þurra á tungu og
ögn alkóhól en þó ekkert sem truflar. Já þetta
er sannkallaður karlabjór sem óhætt er að mæla með
fyrir unnendur Indian Pale Ale stílsins en fyrir minn
smekk þá er hann örlítið of bitur. Samt góður
bjór og vandaður. |