|
Já
svei mér þá, þessir kanar eru ansi skrautlegir.
Hér rakst ég á bjór frá merkilegu brugghúsi sem kallar
sig fljúgandi hundinn, Flying Dog. Horn Dog er
enskur barley wine og spennandi að sjá hvað þeir gera
við slíkan stíl kanarnir. Þessi ákveðni bjór er
látinn þroskast í nokkra mánuði í tréfati áður en hann
er tappaður á flöskur. Eldist einnig vel á
flösku segja þeir hjá Flying Dog. Þetta er
dökkur bjór með létta froðu. Mikill ilmur er af
honum þrunginn sætu og ávöxtum af suðrænum toga.
Kannski sætur lakkrís? Í munni er þessi bjór bara
nokkuð ljúfur í fyrstu, mjúkur mjög með góða fyllingu.
Bragð býður upp á mikið og sætt malt en einnig
eitthvað sætt en óvæmið sem ég kem ekki fyrir mig,
gæti verið súkkulaði og apótekara lakkrís.
Vínkeimur kemur svo örlítið mikið í gegn þegar nokkrir
sopar eru liðnir og skapar pínu biturleika og jafnvel
dálítið of brenndan alkóhólkeim. |