web log free Old Scratch Amber lager
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

 Flying Dog Old Scratch Amber Lager

stíll :

Lager - minnir þó helst á bock

brugghús :

Flying Dog

land :

Bandaríkin

alkóhól :

5.5 %

fyrst smakkað :

26.09.2008

smökkunarstaður :

Arósar

Ég held að þetta sé mitt uppáhalds bandaríska örbrugghús um þessar mundir, Flying Dog.  Já þeir eru með gríðarlega skemmtilega miða og mjög spennandi úrval af ýmiskonar bjór.  Hér er einn, amber lager.  Amber er komið frá lit bjórsins sem er koparrauður á lit og lager vegna þess að notað er lagerger.  Reyndar er þetta blendingur ef svo má segja því hann er bruggaður á þann máta að ýmsir öl (ale) eiginleikar koma fram í bragði.  Í nefi er hann sætur og vínlegur með rúsínum og líkjör.  Minnir mikið á bock á þessu sviði.  Í munni er um furðu bragðmikinn bjór að ræða, sætt malt og rúgbrauð eða brauðsúpa kemur upp í hugann.  Þetta er í raun bock því það minnir allt á þann stíl.  Bandarísk túlkun á bock líklega.  Fín fylling, létt og stutt eftirbragð.  Þægilegur alvörubjór.