|
Enn
einn frá þessu bráðskemtilega ameríska brugghúsi. Pale
ale er það að þessu sinni. Þetta er fellegur
bjór, tær, rauðbrúnn og fínn með fallega froðu.
Humlar eru áberandi í nefi, beiskir og blómstrandi.
Ögn sítrus en einnig sætur keimur af korninu. Í
munni er eins og við var að búast um mikinn bjór að
ræða. Þéttur og gefur góða fyllingu með beiskum
Cascade humlum sem eins og menn kannski þekkja minnir
dálítið á Campari (eyrnamergur). Það er mikil
mýkt og þessum bjór og beiskjan er alls ekki
yfirþyrmandi því maltið vegur vel á móti þó svo að
lítil sæta sé til staðar. Sítrus og ýmsir
skemmtilegir bragðtónar í þægilegu eftirbragðinu.
Róandi og notalegur bjór sem vel er hægt að mæla með
fyrir menn sem ekki alveg þora í fullkomna
humlaupplifun hjá hinum fljúgandi hundi. |