Þetta öl frá þýskalandi er tileinkað
Oktoberfest í
Munchen sem eins og menn vita er haldin árlega með pomp og
prakt. Í glasi er ölið keimlíkt hinum hvíta Erdinger,
gulur/hvítur og mattur með mikla froðu. Í nefi má finna
frískandi "sæta" humla eða ávexti en ekki þetta "típíska" hveitinef. Þetta er frekar mildur bjór og
bragðlítill sem er eitthvað sem EKKI er einkennandi fyrir
oktoberfest bjóra almennt. Dvelur stutt í munn og það
fer lítið fyrir honum. Mildur mjög með mjög veika humla.
Ekki svakalega krefjandi verkefni fyrir bragðlaukana. Í
raun er hér ekki um hefðbundinn
oktoberfestbjór
að ræða því þetta er
hveitibjór og jafnframt
öl en ekki lager eins og tíðkast með bjóra af
þessum toga. Engu að síður hressandi bjór sem hentar
ágætlega sem session (eða þambari á slæmri íslensku). |