|
Það
er alltaf gaman þegar nýr bjór er skapaður á
klakanum. Hins vegar virðist það loða við
Íslendinga að þeir vilja alltaf halda fast í
lagerinn. Það væri gaman að fá íslenskt öl
(ale) á markað til tilbreytingar. En hvað um
það, El Grillo er lageröl sem dregur nafn sitt af
hinu margfræga skipsflaki sem liggur á um 40 m
dýpi á botni Seyðisfjarðar. Þetta er gullinn
og tær bjór sem unir sér vel í glasi. Í nefi
má finna ferska humla á léttu nótunum og grös.
Bjórinn hefur þægilega beiskju, er ögn grösugur með
fína kolsýru, og gefur ágætis fyllingu. Nettir
humlar sjá svo um eftirkeiminn. Já þetta er bara
hinn fínasti lager sem allt í lagi er að smakka en
hins vegar er alls ekkert nýtt hér á ferð.
Þetta er í raun bara enn einn íslenski lagerinn.
Hentar vel með mat af ýmsum toga. |