|
Einstök
er dálítið spes brugghús. Um er að ræða ameríska
hugmynd þriggja manna sem ákváðu að brugga bjór úr
besta fáanlega vatni veraldar. Þeir duttu niður
á Ísland og settu sig í samband við Víking brugghús.
Þeir hófu svo samvinnu með Baldri bruggmeistara
Víkings og fljótlega fóru að myndast hugmyndir af
bjór. Pale ale er einn af nokkrum bjórum sem úr
þessari samvinnu kom og mun fást víðs vegar um heiminn
sem og á Íslandi innan skamms. Það má til gamans
nefna að undirritaður m.a. var fenginn í að
smakka til þessa bjóra á tilraunastigi . Útkoman
er bara nokkuð góð. Fallegur og tær í glasi með
sætt malt í nefi,brakandi humlum og snefil af
gersvepp. Í munni mildur, þægilegur og ljúfur.
Humlar koma vel fram en langt frá því að vera of
beiskir. Maltaður karamellu bakgrunnur og ljúft
eftirbragð. Frábært öl fyrir alla Íslendinga |