web log free Egils Þorrabjór
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
fróðleikur
 
 
 

Egils Þorrabjór

stíll : Lager
brugghús : Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
land : Ísland
alkóhól : 5.6%
fyrst smakkað : 25.1.2003
smökkunarstaður : Brekkuskógur, hús nr3

Ja enn eru þeir hjá Agli að koma með nýtt og skemmtilegt framlag í bjórmenningu landsins. Þorrabjór! líklega sá fyrsti og eini sinnar tegundar á jörðinni eða hvað? Hingað til hefur lagerinn frá Agli ekki heillað mig persónulega og ég hef forðast hann sem heitan eldinn en jólabjórinn þeirra var snilld þannig að ég bara varð að prófa þennan enda þorramánuður ekki satt? Já þetta er sem sagt bústaðarbjórinn að þessu sinni. Þetta er svona líka ljúfur og fínn karl, bragðmikill og með fína þétta fyllingu og svo vel sprellandi humla. Þorri er samt gjörsamlega laus við að vera rammur eða of þurr. Ég get svo svarið það að ég er að finna, auk humla, pínu HUNANG í nefi? Mjög spes. Þetta er sem sagt klassa lager sem hentar vel með flestum mat, mætti þó vera rammari til passa með þessum viðbjóði sem við köllum þorramat, svona til að frelsa bragðlaukana frá úldmetinu. Kannski fínn með súru hænulegi!!!!!