|
Egils
jólabjór er annar af tveim jólabjórum frá Ölgerðinni. Um
er að ræða jólabjór af lager gerð. Þegar njóta á og meta
skal bjór hefst athöfnin á útliti umbúða og þá verð ég að
segja að græna glerið er ekki alveg að virka á mig. Ég vil hafa dökkt gler fyrir jólabjór. En
nóg um það, þegar bjórinn er kominn í glas Þá er um nettan
fallegan lager að ræða með koparblæ. Fín froða. Í
nefi er einhver sæta, karamella og humlar. Á tungu er
svo um bragðmikinn og þægilegan lager að ræða. Fín
fylling og ljúft eftirbragð. Þetta er bjór sem drekka
mætti allt árið um kring með góðu móti en það er lítill
"jólafaktor" í honum. Þetta er svo bara mitt álit,
en ég er alltaf að leita að einhverju sem tengjast jólunum í
jólabjór. Gaman væri að fá ykkar álit, smellið hér á
stjörnurnar fyrir neðan til að gefa ykkar dóm |