|
Saga
Duvels er löng og skrautleg og má eiginlega segja að hún hefjist í
Belgíu milli heimstyrjaldanna tveggja þegar Jean nokkur De Clerck, sem þá
var virtur bruggmeistari og vísindamaður, einangraði nokkrar af gersveppum
þeim er hið fræga McEwans öl var gert úr og notaði svo í nýjan bjór frá
Moortgat, sem var glæsilegt og sterkt dökkt öl. Eftir heimsstyjöldina
síðari fóru hinsvegar dökkir bjórar um heim allan að lúta lægra haldi fyrir hinum nýju
gullnu pilsnerum frá Tékklandi. Hjá Moortgat lögðust menn þá í rannsóknir til að mæta
þessari nýju eftirspurn og árið 1970 sviptu þeir hulunni af afrakstri
rannsónanna sem var hinn gyllti Duvel. Þetta er gríðarlega
bragðmikill bjór með mikið og flókið bragð sem
tröllríður bragðlaukunum. Heilmikið frútt og
hressleiki. Ferskir brakandi humlar og afar
góð fylling. Maður bókstaflega finnur fyrir
vísindunum
 |