web log free Duchesse De Bourgogne
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Duchesse De Bourgogne

stíll :

Flæmskt rauðöl/brúnöl

brugghús :

Brouwerij Verhaeghe

land :

Belgía

alkóhól :

6.2 %

fyrst smakkað :

10.03.2006

smökkunarstaður :

Árósar

Duchesse er flæmskt rauðöl eins og það gerist best.  Dálítið í anda Rodenbach en þó ekki eins.  Í nefi má finna ögn súran keim og vínlegan sem minnir á "sérrí".  Einnig málmur eða ryð?   Í munni gælir sopinn við allar skynfrumur með ferskum, gosríkum og sætum keim sem minnir á brenndan sykur eða kandís.  Mikill málmur og svo er súr eins konar mysukeimur eins og rauðöli sæmir. Þetta er afskaplega léttur bjór og mjúkur en þó spennandi verkefni fyrir bragðlaukana.  Frábær þambari eða session eins og sumir kalla það og ótrúlegt að hann sé 6.2%.  Bjór þessi er látinn þroskast í eikartunnum í 18 mánuði og fær þar með sitt skemmtilega og flókna bragð.  Ég gef þessum bjór topp einkunn eða hér um bil.. 4.5.