web log free Delirium Tremens
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Delirium Tremens

stíll : Belgískt sterköl
brugghús : Brouwerij Huyghe
land : Belgía
alkóhól : 8.5%
fyrst smakkað : 2002, ednursmakkað 2011
smökkunarstaður : Reykjavík

Það er gaman að sjá hversu mikið bjórsmekkur og tunga þróast.  Ég smakkaði þennan fyrst árið 2000 og var þá frekar skammt á veg kominn í bjórsmökkun.  Ég gaf þessum karli ekki góða dóma þá (sjá hér).  Þegar ég smakka þennan bjór í dag þá skil ég vart þennan gamla dóm minn.  Bjórinn er gullfallegur í glasi.  Mikil froða og fínn ferskur keimur.  Fullt af ávöxtum, geri og hamingju.  Í munni er um kröftugan bjór að ræða með mikinn skrokk og flókið bragð.  Svipar í raun um ansi margt til konung bjóranna Duvel nema hvað að hann er töluvert meira "frúttaður" og kannski ekki alveg eins þróttmikill.  Það er þægilegur hiti í honum, maltið er ekki áberandi sem slíkt en það skapar þó jafnvægi við humla sem eru látlausir.  Gerið er allsráðandi með sínum ýmsu bragðtegundum.  Virkilega ljúft öl.