web log free De Koninck Tripel
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

De Koninck Triple

stíll :

Belgískur Tripel

brugghús :

De Koninck

land :

Belgía

alkóhól :

8,0 %

fyrst smakkað :

17.7.2010

smökkunarstaður :

Reykjavík

Það er orðið langt síðan ég hef fengið mér venjulegan De Koninck.  Ágætis belgi þar á ferð.  Hér er dálítið öflugari útgáfa af honum, Tripel.  Triple hlutinn í nafni bendir til þess að hér sé mikill, flókinn og sterkur bjór á ferð og lang líklegast ljós að lit.  Jú jú passar, í glasi er hann ljós með fína þétta froðu.  Ilmar eins og mildur tripel, ögn súr, ferskur og þurr keimur.  Klikkar heldur ekki í munni, tripel án efa, ögn þurr, massíft mikið bragð, hiti, beiskja án þess að nálgast IPA, sætt malt kemur á móti og svo er ger og ögn sítrus.  Nammi namm, góð fylling og svo ljúft og þægilegt eftirbragð, sætt korn jafnvel og brenndur sykur.  Gríðarlega ánægður með þennan, fæst í ÁTVR.  Góður einn og sér t.d. yfir góðu spili með félögunum.