web log free De Koninck Hoge Gisting
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

De Koninck Hoge Gisting

stíll :

Belgískt öl

brugghús :

De Koninck

land :

Belgía

alkóhól :

5,0 %

fyrst smakkað :

28.12.1999

smökkunarstaður :

Reykjavík

Það er orðið lang stíðan ég smakkaði þennan bjór síðast en þetta er það sem ég hafði þá að segja: "Hér er enn á ferð staðfesting þess hve Belgar eru miklir snillingar í bjórgerð.  Þetta ágæta eintak er alveg ljómandi fínt öl, mildur, pínu humlaður og skilar svo ljúffengu eftirbragði sem varir í dágóða stund.  Nokkuð góð fylling en lítið fer fyrir froðunni". Já bjór þessi er gott dæmi um ljúffengt belgískt öl í mildari kantinum en þó með mikinn persónuleika.  Brenndur sykur, þægileg beiskja og ger er t.d. eitthvað sem þessi býður upp á .  Mjög vel heppnaður bjór í alla staði.

 

ATH Síðasti bjór fyrir hin svokölluðu aldamót, ef Y2K brestur á er aldrei að vita nema þetta verði minn síðasti bjór : )