web log free Batemans Dark Lord
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Batemans Dark Lord

stíll : Enskur Portari
brugghús : Batemans
land : England
alkóhól : 5.0 %
fyrst smakkað : 12.1.2007
smökkunarstaður : Árósar - Danmörk

Mín fyrstu kynni af Batemans áttu sér stað hér um jólin þegar ég bragðaði á jólabjór þeirra Rosey Noesy.  Nú kemur gamla lumman, en verandi enskur bjór þá bjóst ég ekki við miklu en viti menn Rosey Nosey var svona ansi fínn karl.  Um daginn rakst ég svo á þennan frá þeim og ákvað að tékka á honum.  Ég sé ekki eftir því því hér er bara nokkuð góður bjór á ferð.  Þrusu karl með mikið fyrir lítið.  Þá meina ég kraftmikill bjór með mikið bragð án þess að vera of alkóhólríkur eða bitur. Fyrir þá sem eru fyrir ensk öl úr fjölskyldu portara þá er þessi ágætur möguleiki.