web log free Struise Cuveé Delphine
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Struise Cuvée Delphine

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

De Struise Brouwers

land :

Belgía

alkóhól :

13.0 %

fyrst smakkað :

25.3.2011

smökkunarstaður :

Bústaður - Grímsnesi

Ég var mjög spenntur þegar ég sá dómana sem þessi belgíski Imperial Stout var að fá á Ratebeer, brugghúsið er einnig þekkt fyrir frábæran bjór.  Hef áður smakkað einn sem er Mikkeller/Struise blendingur og sá var sko ljúfur.  Imperial Stout er stíll sem stundum getur verið of þungur, of brenndur og oft með of mikið áfengisbragð að mínu mati.  Cuvée er látinn eldast í viskítunnum í einhvern tíma áður en hann fer á flöskur.  Kol kolsvartur í glasi með æðislega brúna þykka froðu.  Í nefi sætur keimu, ristað malt, fullt af kaffi, súkkulaði og reykt pylsa.  Í munni er um mjög öflugan karl að ræða.  Mikið bragð, dálítið of reyktur fyrir minn smekk og áfengið of áberandi.  Auk þess er vanilla, súkkulaði og kaffi.  Vissulega mikill og öflugur bjór og ég skil vel að hann falli vel í Imperial Stout unnendur, persónulega er ég meira sætari stouta hins vegar.  Hér má lesa nánar um stout typurnar.