|
Bjór
ţessi er dálítiđ spennandi ţar sem hann er bruggađur
međ vinsćla belgíska kexköku sem fyrirmynd. Í
glasi er bjórinn appelsínugulur ađ lit og mattur međ
létta frođu. Tilvísun til kökunnar er
greinileg í nefi ţví ađ vitum manns leggur sćtan
engiferkeim sem minnir á smákökur sem mađur hefur
smakkađ í kringum jólin. Lykt ţessi er viđeigandi í
ţessu tilviki ţar sem um er ađ rćđa "kökubjór".
Í munni er bjórinn afar sérkennilegur međ vínlegan
sćtan keim og svo engifer eđa kanil og líka eitthvađ
pínu ţurrt eđa súrt. Ţađ er svona ekta
smákökukeimur sem skín í gegn en í restina kemur
dálítiđ alkóhól sem ágerist ţegar líđur á bjórinn.
Mjúkur og ţćgilegur međ mikla fyllingu. Ţetta
er svona bjór sem mađur tekur einn og einn í einu á
huggulegu síđkvöldi. |