|
Chimay
Tripel er eitt af 3 sköpunarverkum Chimay
klaustursins. Eins og hinir tveir þá er þetta
trappist öl eða
ósvikinn munnkabjór, hann er ljós að lit og mattur
og í glasi skartar hann fínni þéttri og dúna mjúkri
froðu. Öl þetta gælir við nefið með þéttri
ávaxtaríkri lykt sinni og svo fá bragðlaukarnir
einnig sinn skammt, því hér er bragðmikill bjór á
ferð með nettum humlum, hnetum og svo þetta
einkennandi
frútt öl bragð sem
skín í gegn þó dauft sé. Góð fylling mjúkur í munn
og gosríkur. Þetta er mikill bjór með sterkan
karakter en þó léttur og ekki yfirþyrmandi. Svipar
dálítið til
Leffe Blonde þó
græna eplið sé fjarverandi. Sem og með aðra
trappist bjóra þá gengur Chimay hvítur vel með
eðalostum. |