|
Hér
með hefst saga bjórbókarinnar og er það Chimay
rauður sem ríður á vaðið. Ég réðist nú ekki á
garðinn þar sem hann var lægstur með þennan sem
upphafsbjór því hér er á ferð hágæða
klausturbjór
(abbey) frá Belgíu. Chimay er eitt af 6
bruggfyrirtækjum í heiminum í dag sem má nota
TRAPPIST merkið en það þýðir að þessi bjór sé
bruggaður af alvöru munkum í alvöru klaustri. Já
þetta er bragðsterkur bjór með mikið malt bæði í
nefi og munn. Biturleika er stillt í hóf en þó nóg
til að fríska upp á bjórinn og gæða hann lífi.
Ljúft milt og langt eftirbragð varðveitir
minninguna. 7% alk, leynast vel í þessum ágæta öl.
ATH: Fyrsti bjór dagsins og því
bragðlaukarnir óspjallaðir og fínir! |