|
Þetta er án efa mikill bjór með rosalegt bragð. Í nefi
má greina mikla humla í bland við smá vodkakeim og kannski smá
karamellu ef maður er "open minded". Í munni má finna
mikla fyllingu sem þó eyðist fljótt og þynnist upp. Það
er ekkert til sparað með alkóhílið í þennan kall því við erum
að tala um 10% og ekkert minna. Í bragði má vel greina
vínandann sem gefur bjórnum ögn sherry fílíng en svo koma
massífir humlarnir inn sem yfirgnæfa allt annað. Hver
sopi fjarar svo út með löngu og ljúfu eftirbragði sem minnir á
efirbragðið af grænum eplum. Í heildina er þetta mikill
bjór sem hentar ágætlega sem "fyrir háttinn sopi" en maður
þarf að vera tilbúinn í að takast á við villidýr. Ég er
persónulega meira fyrir ögn mildari og rólegri bjór. |