|
Það
var nú kominn tíma að meta þennan bjór því þetta hefur verið
einn af mínum uppáhalds lagerum í gegnum tíðina. Það þarf
vart að kynna þennan karl því allir hafa nú einhvern tíman í
tíðinni bragðað á kauða. Þetta er fallegur og smart lager
sem kann vel við sig í háu glerglasi. Það má líka drekka
þennan af stút við grillið eða hvar sem er. Ylmar vel með
áberandi humlum og lítið af malti og pínu málmkeimur með. Í
munni er þetta þægilegur bjór, snarpur án þess að vera
rammur og léttur án þess að vera þunnur. Fylling er sæmileg
og eftirbragð langt og notalegt. Þennan gæti ég drukkið
endalaust og hann passar vel með flestum elduðum mat.
Súkkulaði og ostar eiga þó ekki vel við. |