|
Þessi
bjór var bruggaður fyrst í tilefni 125 ára afmæli Carslbergs
en brugghúsið sem var stofnað árið 1847 var fyrsta brugghúsið
til að einangra lager gersveppinn S. carlsbergensis og
jafnframt fyrstir til að brugga lager í Norður Evrópu.
Bjór þessi þótti það góður að hann er bruggaður enn þann dag í
dag. Þetta er dökkur bjór í glasi með ríkulega humallykt
og ögn koníak. Þetta er bragðsterkur lager bruggaður með
hinn gamla vínarlager stíl sem fyrirmynd, en sá stíll má rekja
uppruna sinn til 1840. Það er góð fylling í sopanum og
rífur dálítið í kinnar. Ögn rammur með sterka humla og
hnetukennt eftirbragð. Carlsberg 47 er fínn valmöguleiki
á köldu vetrarkvöldi. |