HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Carsls Jul

stíll : Jólalager
brugghús : Carlsberg bryggeri
land : Danmörk
alkóhól : 5.6%
fyrst smakkað : 06.12.2002
smökkunarstaður : Kaupmannahöfn

Carls Jul er einn af tveim jólabjórum frá Carlsberg og er ólíkt Carsberg Christmas Ale lager.  Carlsberg hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds lagerum og því var afar ljúft að fá að kynnast öðrum fjölskyldumeðlimum hér í Köben.  Þegar þetta er skrifað þá er Carl's Jul allsráðandi en einnig má sjá Tuborg jólabjórnum bregða fyrir.  Carl's Jul er sennilega allra besti jólabjór sem ég hef bragðað af lager stíl þegar þetta er skrifað, og það ætti að prófa að flytja hann inn til Íslands í stað Tuborgs sem virðist mun óstabílli bjór.  Þegar flaskan er opnuð má nánast heyra bjölluhljóm svo mikil er jólastemningin í þessum drykk.  Sætur ilmur stígur upp úr glasinu með malti, pínu karamellu eða kandís og svo humlar í bakgrunni.  Í munni er  hér sælgæti á ferð og bragðlaukarnir syngja af gleði.  Mjúkur og mikill lager með sætum karamellu keim, kandís og kanil og svo þægilegur biturleiki í restina.  Já ég væri alls ekki ósáttur við að fá þennan karl undir tréð hjá mér á aðfangadag.