|
Smakkaði
þennan á dálítið flottum pöbb í New York, Rattl N'
Hum. Virkilega gott úrval bjórs og virkilega
skemmtilegur "ofhlaðinn" pöbb. Ég þekki lítið
til þessa brugghús en ákvað að fá mér eitthvað annað
en Imperial IPA. Bjórinn er fallegur í glasi,
svartur með fallega froðu. Í nefi má finna
brennt malt og súkkulaði og kannski kaffi ef maður er
í stuði. Í munni er um mildan og ljúfan bjór að
ræða, sætt malt og humlar alveg fjarverandi.
Kaffið er dálítið áberandi sem svo sem er markmið
bjórsins en svo kemur ljúfur súkkulaðikeimur með og ég
er ekki frá því að vanilla luri þarna einhvers staðar.
Hinn fínasti stout. |