|
Fyrst
þegar ég smakkaði þennan
12/7'02 í
London þá varð ég ekki fyrir jákvæðum hrifum.
Nú þegar ég smakka þennan bjór þá er hann hrein unun að hafa í
munni og enn skemmtilegri í maga! Sem sagt mjög góður.
Hmmm hvað er hér á ferð kann einhver að spyrja en svarið
einfalt. Hjá
Cantillon er notast við
örverur/ger úr andrúmsloftinu við gerjunina og sú samsetning
getur verið breytileg ár frá ári. Afurðin er því aldrei
eins og menn geta fengið misgóðan árgang ef svo má orða
það. Þessi árgangur var bara einfaldlega mun betri.
Þetta er afar gosríkur bjór og minnir helst á freyðivín,
glæsilegur og elegant með mikið greipaldin og mysu svo er hann pínu
þurr. Afskaplega ferskur og skemmtilegur bjór. Algjört
möst að smakka!!! |