Bud vs Bud!
bjórbókin 17.11.2003
-upp aftur-
-
Það
hefur ekki farið framhjá neinum sem eitthvað hefur kíkt á bjór að til eru tveir
bjórar sem bera sama nafnið. Annars vegar er um að ræða Budweiser frá
Budejovicky Budvar í Tékklandi og hins vegar Budweiser frá hinum ameríska
bruggrisa Anheuser-Busch eða A-B. Það er aldrei góðs viti að hafa tvær
mismunandi vörur á markaðinum undir sama vörumerki. Við eru að vísu að tala um
bjór í báðum tilfellum en hins vegar er þessi bjór afar fjarri því að vera eins.
Framleiðendur þessa bjóra eru einnig á þeirri skoðun að þetta ástand sé ruglandi
og báðir vilja þeir leysa úr þessari flækju. Vandinn er bara sá að báðir aðilar
telja sig vera með betri og upprunalegri vöru og að hin varan sé því að sigla
undir fölsku flaggi. Deilur upphófust fyrst á milli bruggfyrirtækjanna tveggja í
kringum 1870 þegar þau hófu að flytja út bjórinn sinn út fyrir sín eigin
landamæri og inn á sömu markaði.
Síðan þá hafa margir “bardagar” verið háðir í dómsölum hinna ýmsu landa því
hvorugur aðillinn hefur fengið algildan einkarétt á vörumerkinu og verða þeir
því að vinna hvert land fyrir sig ef svo má orða það. Þannig má Anheuser-Busch
selja bjór sinn sem Budweiser í sumum löndum en ekki annarstaðar, og það sama á
við um Budejovicky Budvar.
Nú má spyrja sig, hvort þessara fyrirækja á meiri rétt á að nota Budweiser
nafnið, þ.e.a.s hvor þeirra kom á undan? Þetta er víst ekki svo einfalt.
Anheuser-Busch var stofnað af þýskum innflytjendum á sínum tíma en það var árið
1876 sem Adolphus Busch (bandarískur bruggari fæddur í Þýskalandi) tók upp
nafnið Budweiser sem honum fannst sérstakt og minna sig á sitt gamla land sem á
þessum tíma var þegar þekkt fyrir sinn hágæða bjór. Bjórinn átti líka að vera
bruggaður í anda hinna þekktu tékknesk/þýsku pilsner bjóra og var því við hæfi
að hafa þýskan hljóm í nafninu.
Budejovicky Budvar brugghúsið sem þá hét reyndar Czechoslovak var ekki stofnað
fyrr en 1895 í bænum Ceske Budejovice. Hins vegar hefur bjórinn verið bruggaður
í Budejovice síðan á 14. öld. Þýska nafnið á bænum er Budweis og orðið Budweiser
þýðir einfaldlega bjór frá Budweis héraði og er því lýsandi fyrir uppruna
bjórsins. Tékkarnir nota því þessi rök til að réttlæta nafnið sem komið var fram
löngu áður en Ameríkanar yfirhöfðuð voru farnir að brugga bjór. Reyndar var bjór
aldrei framleiddur formlega undir nafninu Budweiser fyrr en Budejovicky Budvar
hóf bruggun sína.
Það er því óljóst hver hefur rétt á þessu blessaða nafni og menn verða bara að
gera það sjálfir upp við sig. Í dag eru yfir 40 lögsóknir í gangi víðs vegar um
heiminn en erfitt er að halda tölu á hvort fyrirtækið hefur undirtökin þessa
stundina. Það nýjasta í þessum efnum er hins vegar að Budejovicky Budvar hafði
betur í baráttunni um England og má nú selja sinn bjór undir sínu nafni.