web log free Brugghús á Íslandi

Brugghús á Íslandi
-til baka-

(uppfært 20.5.2009)

Um þessar mundir er Ísland í dálítilli uppsveiflu hvað varðar bjórinn og menningu hans.  Bjórúrval hefur batnað í Vínbúðinni og brugghúsunum hefur verið sð fjölga og eru það þá hin spennandi örbrugghús sem eru að bætast við.  Risarnir Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Vífilfell eru á sínum stað en auk þeirra má finna Bruggsmiðjuna Árskógssandi, Mjöður Brugghús, Ölvisholt Brugghús, Ölgerð Reykjavíkur og El Grillo sem í raun ekki er brugghús.

 

Nánar um brugghúsin:

Ölgerðin Egill Skallagrímsson : Elsta brugghús landsins, staðsett í Reykjavík. Brugghúsið framleiðir margar tegundir bjórs í léttari kantinum og af gerðinni lager.  Þar má nefna Egils Gull, Egils Premium, Egils Þorrabjór og marga aðra.  Einnig færir Egils okkur bjóra eins og Grolsch, Tuborg, Guinnes og Kilkenny.  Allt afar vandaðir og þægilegir bjórar.  Guinnes sem er stout þarf vart að kynna.

Borg brugghús: Lítið örbrugghús innan veggja Ölgerðarinnar.  Hér fræ bruggmeistarinn að leika sér frítt.  Útkoman er t.d. hinn frábæri pilsner Brio og svo með betri IPA bjórum sem ég hef smakkað, veit ekki enn hvaða nafn hann fær þegar þetta er skrifað.

Vífilfell : er hinn risinn og framleiðir m.a. Víking Gylltan, Víking Lager, Víking Dökkan, Víking Stout og Thule. Að auki færir fyrirtækið okkur þekkta karla á borð við Carlsberg, Elephant, Corona og svo hina frábæru Jacobsen bjóra sem tilheyra sælkerabjórnum.

Bruggsmiðjuna Árskógssandi - er fyrsta örbrugghús landsins. Staðsetning er fyrir norðan eða á Árskógssandi.  Brugghúsið bruggar Kalda sem til er ljós og dökkur en einnig gera þeir árstíðarbjór svo sem Þorrabjór og páskabjór.  Bjórinn þeirra er bruggaður í anda tékknesk pilsners og ber hann þess berlega merki.

Ölvisholt Brugghús - er lítið snoturt örbrugghús staðsett skammt frá Selfossi.  Brugghúsið er fyrsta örbrugghúsið sem bruggar alvöru sælkerabjór að mínu mati, Skjálfta, Móra og Lava til að nefna nokkra.  Auk þess gera þeir árstíðarbjór.  Brugghúsið getur líka státað að því að vera eina brugghúsið að mér vitandi sem flytur út afurð sína, m.a. til Svíþjóðar og Danmerkur.  Nú er svo auk bjórs hægt að kaupa bygg og humla hjá þeim félögum fyrir heimabruggið.
 

El Grillo - er í raun ekki brugghús heldur er um að ræða öláhugamann mikinn Eyþór Þórisson að nafni sem bruggar bjórinn sinn í gegnum Ölgerðina Egil Skallagrímsson.  Bjórinn heitir El Grillo en að mér vitandi ber "brugghúsið" ekkert nafn.

Ölgerð Reykjavíkur - er örbrugghús sem bruggar bjór sinn í gegnum Bruggsmiðjuna Árskógssandi.  Bjórinn þeirra heitir Gullfoss en fleiri eru væntanlegir. Það sem er áhugavert við þetta brugghús er að einn mesti bruggsnillingur heims, eða amk Danaveldis Anders Kissmeyer frá Nørrebro Bryghus er heilinn á bak við uppskrift bjórsins.  Það verður spennandi að sjá meira frá þessu nýja brugghúsi.

Mjöður Brugghús - er lítið örbrugghús staðsett á Stykkishólmi. Frá Miði kemur Jökull bjór sem er af gerðinni lager.  Mjöður hefur einnig bruggað Þorrabjór sem tókst ansi vel að mínu mati.  Það verður spennandi að fylgjast með vexti þessa brugghúss.