|
Ég
smakkaði þennan fyrir rúmu ári síðan og gleymdi alltaf
að skrifa um hann. 'Eg smakkaði hann því aftur í
dag (4.5.2009) til að skrifa hann hérna inn. Um
er að ræða bjór af gerðinni
imperial stout
sem eru kröftugir og oft bragðbættir stout bjórar í
sætari kanntinum. Þessi er alveg kolsvartur í
glasi með þykka ljósbrúna froðu. Lyktin er sæt,
það er létt ristað malt og sætir þurrkaðir ávextir.
Í munni er um gríðarlega mikinn og ljúfan bjór að ræða
sem þarfnast athygli hvers einasta bragðlauks.
Fylling er rosaleg, alkóhól vel falið og humlar rétt
aðeins lyfta undir bjórinn og forða honum frá því að
vera væminn. Hann er sætur en ristað kaffi og
dökkt súkkulaði gera hann ögn bitran. Já
svakalega skemmtilegur bjór og með betri státum sem ég
hef smakkað. Ég mæli með þessum með konfekti eða
franskri súkkulaðiköku og jafnvel vanilluís með heitri
súkkulaðisósu umm klikkar ekki. |