web log free Brøckhouse IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Brøckhouse IPA

stíll :

Indian Pale Ale

brugghús :

Brøckhouse

land :

Danmörk

alkóhól :

6.0 %

fyrst smakkað :

05.09.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Þá er það enn einn IPA í safnið.  Já hin danska túlkun á IPA er algjörlega að slá í geng hjá mér svei mér þá. Þessi er gylltur og fallegur í glasi með meðal froðu og í nefi er þetta dálítið kryddaður bjór með ferskum humalkeim og ögn sítrus (líklega frá amarillo humlunum). Þetta er annars bragðmikill og fullur bjór með spriklandi beiskju. Gómsætir og mildir humlar sem tóna vel við sætt maltið. Gríðarlega gott eftirbragð. Hefðbundinn IPA með bitrum humlum sem þó eru ekkert yfirgnæfandi, þurr á tungu með grapealdinn keim.  Já það er orðið óhætt að segja að Danir hafa náð fullkomnun í bruggun IPA stílsins.