|
Hér
er kominn jólabjór frá Brøckhouse
sem fór reyndar á hausinn fyrir skömmu ef ég man rétt.
Menn hafa greinilega fundið leið út úr krísunni eða
einhver annar hefur tekið yfir framleiðsluna. En
að bjórnum, þetta er dimmrauður og tær bjór með mikinn
fallegan froðuhaus. Í nefi grösugur, með nettum
humalkeim sem klárlega eru af þýskum uppruna. Í munni
er um mjög léttan og "lítinn" bjór að ræða.
Fylling er í lágmarki, hann er létt kolsýrður og með
stutt eftirbragð. Í munni er mjög lítið að
finna, með góðu móti má greina ögn kaffikeim og dökkt
súkkulaði en það er þó varla. Svo er einhver
léttristaður eða brenndur keimur.sem gerir
þó dálítið fyrir bjórinn annars er um mjög lítt
spennandi jólabjór að ræða. Mæli ekki með honum
og fá mér hann ekki aftur. |