web log free Brewdog Hops Kill
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Brewdog Hops Kill

stíll :

Imperial Red Ale

brugghús :

Brewdog

land :

England

alkóhól :

7.8 %

fyrst smakkað :

02.12.2011

smökkunarstaður :

Akkurat Stokkhólmi

Brewdog er komið í röð uppáhalds brugghúsa minna um þessar mundir.  Þennan smakkaði ég á mögnuðum bjórstað í Stokkhólmi sem heitir Akkurat. Þar er hægt að fá myndarlegt úrval bjórs en á ofsalega háau verði samt.  Sumt þess virði eins og t.d. þessi magnaði karl.  Fékk hann á krana á 98 kr sænskar.  Um er að ræða amerískan amber eða rauðöl.  Fallegur amber að lit með flottri froðu.  Í nefi eru blóm, hunang og beiskja.  Ofsalega ljúfur keimur.  Í munni kemur þessi bjór á óvart hvað varðar fyllingu sem er eins og best verður á kosið.  Mikið bragð, humlar gegna aðalhlutverki , haugur af þeim alveg en þó ekki það bitur að það rífi óþægilega í.  Svo er eins og dálítið hunang og ristað malt.  Ummm þessi bjór er fullkominn fyrir fólk sem elskar humla, sem sagt fullkominn fyrir t.d. mig :)