web log free Brewdog Hardcore IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Brewdog Hardcore IPA

stíll :

Imperial IPA

brugghús :

Brewdog

land :

England

alkóhól :

9.2 %

fyrst smakkað :

17.9.2011

smökkunarstaður :

Kaupmannahöfn

Smakkaði þennan magnaða bjór fyrst á bjórleiðangri mínum í Kaupmannahöfn.  Þetta var jafnframt fyrsti bjór minn frá Brewdog sem er lítið brugghús í Englandi sem er að gera garðinn frægann meðal bjóráhugamanna.  Í stuttu máli er þetta fullkominn Imperial IPA. Til að gera stutta sögu langa þá er hann fallegur í glasi með fína fallega froðu, unaðslegur í nefi með haug af humlum og toffee. Þéttur í munni eins og fullvaxinn "súmoglímukappi" á góðum sumardegi. Mikil beiskja, blóm og frútt sem hvlír á þægilegri sætri maltbeinagrind þar sem finna má toffee. Úff hvað þetta er fullkomið. 9.2% - hiti, frábært bittersweet eftirbragð. Já þessi bjór hefur allt til að bera.  Fullkominn Imperial IPA. Akkúrat svonna
bjór mun ég brugga í næsta batchi.