web log free Brewdog There Is No Santa
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Brewdog There Is No Santa

stíll :

Stout-Jólabjór

brugghús :

Brewdog

land :

England

alkóhól :

4.7 %

fyrst smakkað :

29.11.2011

smökkunarstaður :

Stokkhólmur Svíþjóð.

Ég batt miklar vonir við þennan jólabjór frá þessu magnaða brugghúsi.  Varð pínu fyrir vonbrygðum samt því væntingarnar voru miklar.  Bjóst við meiri og öflugari bjór.  Bjórinn er hins vegar bara 4.7% og mildur karl þannig að maður verður að taka honum sem slíkum.  Þegar maður er kominn með það á hreint þá er þetta afbragðs jólabjór.  Hann hefur nefnilega einmitt heilmikinn jólakeim.  Hann er svartur í glasi með flotta froðu. Í nefi má finna negul og kanill, jóla jóla :) Svo er hann mildur á tungu og með ljúfa krydd tóna, negull og svo sætur púðursykur.  Engir humlar en þó dulítil beiskja.  Í eftirbragði má greina ljúft ristað malt og dökkt súkkulaði.  Þetta er víst stout og það er í eftirbragði sem það kemur helst í ljós en annars lítið sem minnir á stílinn.  Persónulega finnst mér vanta upp á fyllinguna og hann hefði mátt rífa meira í.  Verandi jólabjór þá vill maður líka sjá hærri prósentur.  Annars ágætis jólabjór, hann er amk jólalegur.