web log free Bombay Pale Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Bombay Pale Ale

stíll :

Indian Pale Ale

brugghús :

Nørrebro Bryghus

land :

Danmörk

alkóhól :

6.5 %

fyrst smakkað :

10.05.2006

smökkunarstaður :

Árósar

Nørrebro Bryghus er nýja uppáhalds brugghúsið mitt.  Ég heimsótti það um daginn og komst að því að þeir brugga líklega besta bjór sem Danir hafa uppá að bjóða.  Þeir brugga um 15 tegundir úr ýmsum áttum og allir serveraðir af krana.  Þrír af þessum bjórum eru nú komnir á flöskur og er Bombay Pale Ale einn þeirra.  Bjór þessi kom mér verulega á óvart og ég held ég geti með góðu móti sagt að hér sé besti bjór sem Danir bjóða uppá á flösku.  Í nefi má finna hreinan blómlegan og sætan keim með apríkósum og grape.  Í munni liggur sopinn vel.  Mjúkur og gosríkur og pínu bitur með grape aldin og blómlegan karakter.  Bjórinn endar svo heimsókn sína með þægilegum og ljúfum eftirleik með humlum og kaffi sem varir lengi en endar svo í sætum maltkeim.