HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Blue Berry Hill Ale

stíll : Danskur ávaxtabjór
brugghús : Ørbæk
land : Danmörk
alkóhól : 6.0%
fyrst smakkað : 19.11.2004
smökkunarstaður : Århus

Jafnvel þó ég gjarnan vildi geta sagt að hér væri gómsætt öl á ferðinni þá bara get ég ekki lyft mér það.  Flaskan og miðinn eru mjög vel úr verki gerð en það er í raun eina góða við þennan bjór.   Já í nefi er einhver skrítin lykt sem ég ætla ekki að reyna skilgreina en á þó eitthvað skilt við bláber. Á tungu er bjórinn ögn súr og lítið eða ekkert ber á bláberjunum? Hvar eru þau????  Erfitt er að greina hvort um lager eða öl er að ræða því þetta er frekar þunnur og léttur bjór og allt allt of vatnskendur.  Ég veit hins vegar að þetta er öl.  Já bjórinn er bruggaður með handfylli af bláberjum til heiðurs lagsins "I found my thrill on the blueberry hill" sem Luis Armstrong gerði frægt um árið.  Að mínu mati er þetta bara hrein óvirðing við annað eins tónlistameistaraverk og þetta lag er.  Bjórinn er einfaldlega ekki góður og minnir um of á vatnið sem rennur í krananum.