Læknavísindin tjá sig um málið
bjórsmakk september 2010
Til Baka
Eitt lítið skref fyrir Bjórbók en mögulega stórt skref fyrir bjórmenningu Íslands. Já Bjórbókin smalaði nefnilega nýverið saman nokkrum háttvirtum læknum þessa lands og bauð þeim að opna augun fyrir heimi bjórsins. Þeir hjá Karl K Karlssyni lögðu Bjórbókinni lið við kynningu þessa og fá þeir þakkir fyrir hér með.
Mættir voru 8 heimilislæknar af heilsugæslu nokkurri í Grafarvogi allir á mismunandi stigum bjórþekkingar en flestir nokkuð óspjallaðir verður að segja. Bjór kvöldsins var valinn með það markmið að varpa dálítlu ljósi á fjölbreytileika bjórheimsins. Fyrir valinu voru sælkerabjórarnir Skjálfti og Miklholts Papi báðir alíslenskir bruggaðir í Ölvisholt Brugghús og svo Leffe Brune einn af hinum gómsætu belgísku klausturbjórum.
Bjórbókin notaði auðvitað tækifærið og hellti úr djúpum fróðleiksbrunni sínum yfir móttækilega töframennina.
Fyrstur í röðinni var hinn alíslenski og
frábæri lagerbjór Skjálfti.
Það var gaman að sjá viðbrögðin en Skjálfti er vissulega mikill bjór og talsvert
meira verkefni fyrir bragðlaukana en hefðbundin lager. Kom á óvart og allir
mjög sáttir og fékk hann góða dóma. Menn voru sammála því að biturleiki væri
áberandi en þó stillt í hóf. Miðað við ummælin mun þessi án efa detta ofan í
körfuna í næstu innkaupaferð
Næst var það
Leffe Brune, belgíska
klausturölið. Dökki liturinn fældi menn frá í fyrstu en svo kom á daginn að
bjórinn var allt öðruvísi en menn héldu. Bragðmikill og sætur sögðu sumir.
Nánast allir mjög ánægðir með þennan bjór og kom það mönnum á óvart hve
alkóhólríkur hann væri án þess að það kæmi fram í bragði.
Miklholts Papi rak
svo lestina. Annar kolsvartur karl. Hér gátu menn “séð” það ljóslifandi hve
liturinn segir lítið. Allt annað en belgísa klausturölið. Hér fundu menn
réttilega súkkulaði, kaffi og einhver nefndi lakkrís og ljúft eftirbragð. Allt
lýsingar sem vel eiga við þennan frábæra páskabjór frá Ölvisholti. Óspjallaðar
lagertungur eða réttara sagt tunga lét fallöxina falla. Hræðilegur bjór var
sagt. Það voru þó 7 á móti þessari athugasemd og flestir því mjög sáttir við
bjórinn. Vangaveltur um pörun við mat komu svo upp og var þar villibráð nefnd
til sögunnar. Líklega góð pörun þar á ferð. Bjórinn á einnig vel við grillmat,
góða nautasteik en einnig sæta eftirrétti.
Svo var komið að því, samantektin. Já allir fóru sáttir frá borðum og ögn fróðari um dásemdir bjórsins, hins vegar var erfitt að krýna einn sigurvegara kvöldsins enda stílarnir mismunandi og samanburður nánast ósanngjarn. Allir voru ánægðir með Skjálfta, 3 völdu þó Miklholts Papa sem besta bjór kvöldsins og 3 Leffe Brune. Það var því ekki hægt að skera út um þetta að þessu sinni. Bjórbókin hafði þó sínar meiningar og valdi Leffe Brune sem besta bjór kvöldsins enda gamall kunningi í uppáhaldi þar á ferð. Skjálftinn er nú sem fyrr besti íslenski bjórinn á markaðnum og góður við öll tækifæri. Porterinn er vissulega góður en stemningin ekki rétt að þessu sinni. Porter stíllinn er svo heldur ekki í uppáhaldi hjá undirrituðum eins og mörgum er nú orðið kunnugt. Engu að síður framúrskarandi bjórgerð.
Það er von Bjórbókarinnar að tekist hafi að sá ögn "bjóráhugafræ" meðal háttvirtra vísindamanna þetta kvöld. Það er svo bara tímaspursmál hvenær Heilsugæslan Sólvangi verður fyrir barðinu á Bjórbókinni.