web log free
 

 

  Forsíða

Bjórstílar 

 

Sagan

 

Glösin

         Pistlar
 
 


 
Hvernig verður þetta að bjór?
 

Sagt á sem einfaldasta máta þá verður bjór til á eftirfarandi hátt.
 
1.Hráefni valið og sótt í hús
2.Mesking - malti er bætt í vatn og hitað á ákv máta til að vinna
   sykur úr sterkjunni (sykrun).  Hér minnir bjórinn á hafragraut.
3.Sykurríkum vökvanum er fleytt undan "grautnum" og kallast virt.
4.Suðan - virtin er soðin og humlum bætt í á mismunandi stigum
   suðunnar til að fá beiskju og lykt í bjórinn.
5.Kæling - virtin er kæld niður í 18
º C og dælt yfir í gertankana.
6.Gerjun - gerinu bætt við og gerjun látin hefjast.  Gerjun tekur mislangan tíma eftir
   því hvort um öl eða lager er að ræða frá viku og upp í 2-3 vikur jafnvel mánuði.
7.Þroskun og átöppun - bjórinn er látinn þroskast í nokkra daga og svo settur á
   flöskur eða dósir.  Stundum er bjór síaður fyrir átöppun, t.d. flestur lagerbjór.