web log free nIcebrew beers

Bjórinn okkar.
------oOo-----

Icelandic Poverty Aid - the next step - Þar sem fyrsta útgáfa þessa bjórs var svo vel lukkaður ákvað ég að þróa hann enn lengra og bæta hann eins og ég gat.  Fyrir skömmu datt ég í humlarannsóknir og uppgötvaði eiginlega þá í fyrsta sinn Simcoe humalinn.  Þetta er dásamlegur humall sem oft er notaður í ameríska IPA.  Humallinn hefur hátt alfasýrustig sem gerir hann góðan beiskjuhumal en svo angar hann líka eins og engill.  Ferskur og blómlegur og því vel hægt að nota hann sem bragðhumal og til að skapa angann.  Þennan humal notaði ég sem sagt í þennan bjór hér ásamt Chinook og Cascade.  Að þessu sinni stillti ég svo biturleikann ögn hærra til að nálgast meira alvöru IPA.  Auk þess skipti ég út Cara Pils maltinu fyrir Cara Amber sem gefur meira bragð en heldur froðueiginleikunum.  Í stað þurrgers var svo notað amerískt vökvager af bestu sort.  Útkoman er svo dásamlega vel lukkaður bjór sem hefur allt sem hinn upprunanlegi Poverty Aid hafði og meira til.  Dásamlega ferskur í nefi og munni, spriklandi gos og góð beiskja sem tekur pínu í laukana.  Caramella og léttristað malt draga þó úr biturleika og skapa fína heild.  Já þegar þetta er ritað er hér um að ræða besta bjór brugghússins einfaldlega.


This is just a very drinkable IPA style beer with lots of Simcoe hops, Cascade and Chinook.  Cara Amber and Cara Crystal malt produce a smooth sweet backround with hints of caramell and a slightly toasted undertone.  Icelandic Poverty Aid - the next step is simply nIcebrew's best beer to date.


------oOo-----
 

Simple nIce Ale  - Við ákváðum að brugga léttan og þægilegan bjór sem krefst ekki mikils af neytandanum. Lágmarks kröfur um gæði og það að kunna slappa af er allt sem til þarf. Simple nIce Ale er bjór sem kemur manni í gott skap, í gott jafnvægi og svalar þorsta á góðum vordegi......eða það er von okkar amk. Allir ættu að geta drukkið þennan karl, meira að segja hinir varkáru lagerþambarar geta óhræddir prófað að reka tunguna ofan í þennan, við lofum að ekki verður aftur snúið. Vatnið sem notað er í þennan er að sjálfsögðu komið frá bræddum ís úr Jökulsárlóni og svo flutt hingað til Danmerkur. Merkimiðinn sýnir brot af Jökulsárlóni sem er einn af þeim stöðum á Íslandi sem á sér hvað stærstan sess í hjarta bruggmeistarans. Jökulsárlón er náttúrufegurð eins og hún gerist best og hinn undarelgi og fallegi blámi sem umlykur mann við Jökulsárlón hefur einhver dularfull róandi áhrif á mann (amk mig) og það er einmitt það sem Simple nIce Ale á að gera...hafa róandi og ljúf áhrif á sál og líkama. Já mörg orð eða hvað? Í stuttu máli, hér er kominn bjór sem menn geta svolgrað í sig við öll tækifæri án þess að reyna of mikið á sig. Bjórinn er kominn á flöskur og verður tilbúinn í kringum 1. Mai.


We decided to make a simple nice ale which everyone could enjoy without to much effort. The alcohol percentage is low and IBU (bittering units) is just around 30 which is just enough to balance out the sweetness of the malts making this a good session beer, fit for every occasion. In the label one can enjoy a bit of Iceland's most beautiful spot, Jökulsárlón or "glacier lagoon". Here one can witness natures breathtaking products in form of huge icebergs in every form an shape.


------oOo-----
 

Easter Bunny's Memorial Brew - er fyrsti páskabjór okkar nIcebrew manna.  Hér er um að ræða bjór af Bock/Maibock gerð sem er sá stíll sem páskabjór oftast er gerður úr, reyndar er þetta ekki lager þannig að bock er ekki alveg réttnefni.  Hvað um það, bjórinn er dásamleg viðbót við okkar ört stækkandi nIcbrew fjölskyldu.  Easter Bunny er mildasti bjór okkar hingað til með aðeins 36 IBU (biturleikaeiningar) sem þýðir að maltið fær að njóta sín meira og bjórinn ætti að ganga vel í bæði lengra komna og nýgræðinga í bjórsmakki.  Maltið er Cara Red og Cara Munich I sem gerir bjórinn rauðan og gefur sérstaklega ljúfa mýkt og fyllingu ásamt gríðarlegan froðuhaus og dásamlegt sætt eftirbragð. Humlarnir eru svo nýir hjá okkur, Hallertauer Hershbrucker og US Perle sem gefa léttan blómugan angann og svo þægileka beiskju og ögn jörð í bragði.  Gerið, þýskt Kölch vökvager, gefur ávaxtakeim bæði í nefi og munni og finna má ananas í nefi og í bakgrunni í bragði.  Gerið er mjög duglegt að gerja sykurinn og er bjórinn því ögn þurr á tungu og frískandi.  nIcebrew er stolt að kynna þennan frábæra bjór sem ætti að falla að smekk velflestra með einhverjar kröfur um gæði.

Easter Bunny's Memorial Brew is a beutiful and delightfull maibock, brewed to selebrate easter. 


------oOo-----
 

Three Headed Monster Ale- er nýtt tilraunaverkefni hjá nIcebrew.  Um er að ræða samvinnuverkefni þriggja snillinga úr Bjórmenningarfélaginu Kidda sem hafa skapað dálítið sérstakt, dálítið einstakt og dálítið ógnvægnlegt, nefnilega bjór og ekki bara einhvern bjór!  Bjór þessi ber nafnið The Three Headed Monster Ale og er þannig úr garði gerður að hver og einn eftirtalinna snillinganna hefur valið sitt hráefni í bjórinn og enginn veit hvað hinn “hausinn” valdi fyrr en uppskriftin var saman komin. Þ.e.a.s ég (nIcebrew) sé um humlana, Atli fagursælkeri sér um að velja gerið sem og auka bragðefni og Óli hjá The Desert Island Brewery sér um maltið.  Á þennan máta hefur Óli áhrif á alkóhólmagnið, lit, fyllingu og auðvitað hluta af bragði á meðan nIcebrew sér um biturleikann (IBU), angann og auvitað stóran hluta bragðsins og loks hefur Atli óbeint áhrif á alkóhólmagn, angann sem og bróðurpartinn af bragðinu.  Bjórinn er svo ekki bara venjulegur bjór því hann mun búa yfir heilmiklum lækningarmætti sem rekja má til lækningarplöntunnar Illicium verum eða Stjörnuaniss á okkar máli.
Bjórinn er fallegur í glasi með gríðarlega þétta og ljúfa froða ofan á rauðbrúnum skrokknum. Í nefi er svona líka ljúfur keimur þar sem lakkrís kemur vel fram ásamt blómugum humlum og karamellu. Í munni er þetta þéttur mikill bjór með ljúfan feitan skrokk. Beiskur og kitlandi, með smákökuyfirbragði sem stafar af maltinu (cara amber og red), karamellu og svo léttbeiskum lakkrískeim í restina. Nammi namm. Sælgæti bjóráhugamannsins er hér með komið í heiminn.

With Three Headed Monster Ale the idea was to create something special, something unique and something dangerous even. In collaboration with Oli at The Desert Island Brewery and Atli the naked chef we have constructed an ale, from ingredients decided by each one of us. In that way Atli was in charge of the yeast and extra spices, Óli was the barley master and nIcebrew took care of the hops and the brewing process. This nice beer displays a lovely deep red to copper colour with nice fluffy white head that lasts throughout the beer. In the nose there is a refreshing floral tone coming from the NS Pacific Gem hops and sweet biscuit notes from the three kinds of malted barley used in this beer. There is a nice round mouth feel and very pleasant aftertaste where one can recognise some liquorice tones from the staranis. The flavour is a bit hoppy and bitter but the sweat Cara malt gives the beer a balanced sweetness. There are somewhat bitter salty tones from the staranis as well. All in all a well balanced and refreshing beer we at nIcebrew can be proud to produce.  Enjoy!
 


------oOo-----
 

Monks Dirty Little Secret- er bruggaður í anda belgískra klausturbjóra eins og þeir gerast bestir.  Vissulega má ekki kalla þetta munkabjór eða Trappist því í fyrsta lagi þá er ég ekki munkur og í öðru lagi þá bý ég ekki í klaustri.  Hins vegar hafa njósnarar nIcebrews komist að því hvað það er sem gerir hinn belgíska munkabjór svona svakalega spes og góðan, það er hið leynilega hráefni.  Ekki verður farið nánar út í það hvað það er, það er jú leynilegt, en nIcebrew hefur sem sagt nýtt sér þessa einstöku vitneskju til að skapa nýjasta bjórinn, öflugan og góðan "munkabjór".  Vissulega er um fyrstu atlögu að hinum dularfulla heimi belgískrar bjórbruggunnar að ræða en það verður að teljast vel lukkuð atlaga vægast sagt.  Til að byrja með vil ég taka fram að það var mér sönn ánægja að brugga þennan bjór, ég átti mjög ljúfar stundir í eldhúsinnu þetta kvöld.  En nóg um það.  Bjórinn er dökkbrúnn eða svartur með nokkuð vel skapaðan froðuhaus sem varir út bjórinn.  Í nefi er mikil sæta, mikið malt, þurrkaðir ávextir, karamella, og kaffi.  Í munni er áberandi "belgískt" bragð.  Hér er það hið belgíska ger sem skapar réttu samsetninguna en humlarnir German Northern Brewers og Hallertauer Hershbrucker gera einnig sitt. Það er þétt og ljúft bragð með nokkuð flóknu yfirbragði.  Sæt karamella, kaffikeimur og dökkt súkkulaði í bland við sæta ávexti.  Eftirbragð er gríðarlega ljúft og varir lengi.  Fylling er meðal til mikil.  Já bjór þessi er hentugur huggubjór á síðkvöldi eða með sætum eftirrétt.

Being a huge fan of Belgian Trappist beer I decided to try to brew my very own sample. Trappist beer is famous world wide for its complex and perfect palate and no one really knows how these monks manage to do this. They've really mastered the art of brewing. It would bee foolish to believe its possible to imitate such dedicated group of brewers unless one would poses their knowledge . This is exactly what our scouts have achieved, namely uncovered their rather disturbing little secret. A secret in the form of a secret ingredient. Of course I cant tell you what that is for then it wouldn't be much of a secret would it? But I can tell you this, we at nIcebrew have come up with our own recipe including that key ingredient and the result is evident. A dark beer with nice lasting head and a nose full of fruits, malt and coffee. The mouth feel is round and full with long lasting very pleasant aftertaste. The taste is somewhat complex with dark fruits, coffee, dark chocolate and mild hops. This beer certainly has distinct Belgian characteristics indicating our success. The beer is a nice nightcap beer or a good companion to a nice desert.
 


------oOo-----
 

The 14th Santa Claus- jólabjór sem á að gera góð jól enn betri ef allt gengur upp. Í uppskriftina valdi ég bestu fáanlegu hráefni og krydd sem tengja má við jólin. Já það eru svo mikil jól í þessum karli að jafnvel Skröggur gamli kæmist í organdi jólaskap ef hann kæmist í þennan. Þetta er dökkur bjór, bruggaður með dökku súkkulaðimalti og púðursykri sem gefa dökkan lit og alveg mátulega fyllingu og svo Cara-Amber malti sem gefur rauðan jólablæ í bjórinn. Svo notaði ég negul, kanil, mandarínubörk, ferskt danskt greni og snefill af piparkökukryddi (allrahanda) til að kalla fram rétta ilminn. Allt er þetta svo bruggað á mjög sérstakan máta, því að í jólabjór á að vera jólastemning og til þess að tryggja hana voru vel valin jólalög með Baggalút (mikilvægast Kósíheit Par Exelens) spiluð á meðan bjórinn var soðinn. Til að kóróna svo þetta allt saman sauð ég saman við humlana 10cm skeggbút frá 14. jólasveininum sem ég komst yfir við ramman leik í fyrra. Ólíkt því sem við flest höldum þá eru jólasveinarnir okkar nefnilega ekki bara 13 heldur 14. Ástæða þess að við vitum lítið um 14. jólasveininn er sú að nú á dögum er honum bannað að koma til byggða sökum óstýrilátrar hegðunar sem ekki þykir lengur viðeigandi á þessum tímum. Karlinn sem ber nafnið Drykkjurútur, hugtak sem flestir kannast reyndar við frá daglegu tali okkar Íslendinga, er nefnilega agalega drykkfelldur sveinn. Árlega stelst hann nefnilega í bjórbruggið hennar Grílu og þá er eins gott að verða ekki á hans leið því karlinn verður ansi ölvaður fyrir vikið. Skeggið hans tekur svo sinn skerf af ölinu og liggur svo í því allt árið þar til næsta skvetta bætist við. Það er því afar sérstakur keimur og dularfullur sem leynist í skeggi karlsins og það er einmitt þetta sem gerir bjórinn okkar hjá nIcebrew svona einstakan. En það er ekki auðvelt að ná í afleggjara og því er um mjög sjaldgjæft hráefni að ræða.
Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá má þessi bjór líklega teljast til verst lukkuðu bjóra nIcebrew.  Hann er eiginlega of kryddaður, þ.e.a.s of áberandi negull og mandarínubörkur.  Enn fremur kemur fram þetta dularfulla plastbragð ef vel er að gáð, bæði í munni og nefi.  Það er sama ger í þessum karli og Poverty Aid og gæti það verið hér sem hundurinn liggur dauður og grafinn.


Every brewery must have its Christmas beer, a beer that is a bit out of the ordinary and well suited for the holydays. The 14th Santa Claus is our contribution to the holydays. It has a deep Christmas red color and a white firm head on top as a reminder of good old Santa’s white beard or maybe the snowblanket that normally covers Iceland at this time. In the nose one can find lots of spices where cinnamon and cloves play the lead rolls. The taste is unique and defiantly not something everyone would like. The palate and taste has some notes of Christmas in the form of spices and brown sugar but there is another special ingredient that lends a hard to describe taste to the overall complexity of the beer. This taste comes from our special ingredient, namely a handful of the 14th Santa’s beard! Yes that’s right, unlike what most Icelanders believe, there are 14 Icelandic Santa clauses, not 13. The 14th Santa named “Drykkjurútur” has for the last 50 years or so remained up in the mountains unlike his 13 brothers that wisit the Icelandic children each year around Christmas time. The reason is, that Drykkjurútur has been banned due to his bad behavior not found suited around children. Drykkjurútur is very fond of beer, and each year his mother, the cruel childreneating troll Gríla, brews a very special beer for her own use over the harsh winter season. Drykkjurútur always manages to sneak into Gríla’s brewery and have a go at the huge storing container. The result is a very very drunk Santa clause and very naughty behavior. But where do we at nIcebrew fit in, one might ask himself? I’ll tell you, we have found a way to get a hold of a sample from Gríla’s unique season ale. Yes that’s true, although we have not found her storing room we have found Drykkjurúturs sleeping quarters and each year we go up into the mountains and when Drykkurútur is a sleep we steel a sample from his beard which is loaded with Gríla’s brew. This is the secret to our own Christmas ale. Try it  if you get a change, but be aware, it will be an unprecedented experience not enjoyable for everyone.


------oOo-----
 

First Icelandic Crisis Pale Ale - Eins og nafnið bendir til er hér um að ræða bjór af gerðinni IPA sem er minn uppáhalds bjórstíll um þessar mundir. Nafnið ber einnig merki um ástandið á Íslandi þegar þessi bjór fór í gerjun.  Bjórinn er því hugsaður sem huggun og áminning um það að þó allt virðist tapað og ómögulegt þá er alltaf til góður bjór. Bjórinn er gerður úr Muntons DME og Cara Crystal malti ásamt Cascade humlum.  Til að töfra fram lokkandi angann notaði ég svo Amarillo þurrhumlun.  Það er svo enskt ger sem færir okkur alkóhólið í þessum karli og heldur honum uppi.  IBU reiknast um 50 og alkóhól um 5.4%. Sjá nánar hvernig Bjórbókin dæmir bjórinn.

First Icelandic Crisis Pale Ale is the first beer from our small brewery. The beer was made as a tribute to the people of Iceland that now face the biggest financial crisis ever. The beer is a reminder that when all seems lost there is still hope, there is still good beer in this world. The style is India Pale Ale. Abv 5.4% and 50 IBU. It's a nice mild version of IPA with delightful aroma from amarillo dryhopping with hints of tangerine and caramel from the crystal malt. The beer has a full body and long lasting smooth after taste. See here how Bjórbókin rates this beer


------oOo-----
 

Icelandic Poverty Aid - Bjór þessi er sem fyrr af gerðinni India Pale Ale eins og felst í nafninu, og er ca 5.7%.  Það eru þrjár gerðir af humlum í honum, Chinook, Cascade og Amarillo sem gefa dásamlega sætan peru/mandarínu keim og 3 gerðir af malti. Það er því um fullskrokka bjór að ræða og vel humlaðan.  Bjórinn er bruggaður með ástandið á Íslandi í huga og þá sérstaklega Oddson vandann.  Bjórinn er ætlaður sem fyrr að þjóna þeim tilgangi að vera mönnum huggun á erfiðum tímun en einnig veita þjóðinni innblástur, andlegan stuðning og nýjar hugmyndir um hvernig leysa má sum vandamál sem hvílt hafa á þjóðinni lengi.   Listamaðurinn á bak við miðann er svo hann Bjarne okkar Rasmussen sem á hrós skilið fyrir sérstaklega vandað handbragð. Bjórinn er mjög frískandi í nefi með áberandi ávaxtablæ sem líklega má rekja til amarillo humla og gersins, það er svo helsti vandinn við bjórinn að eitthvað sem minnir á plast má finna í nefi og munni ef glögg skynfæri eru á ferð.  Í munni er góð fylling, ögn karamella og svo brakandi humlarnir í aðalhlutverki (mætti þó vera meiri biturleiki).  Það sem truflar samt örlítið er ögn plastkeimur í eftirbragði sem ég held að megi rekja til gersins það eru þó alls ekki allir sem finna þetta. Sjáið hér  hvað  Bjórbókin hefur að segja um þennan bjór.

Icelandic Poverty Aid  is nIcebrew’s second beer. It is an India Pale Ale containing three kinds of malted barley, medium dark dry malt extract, Cara Pils and Cara Crystal. This selection of malts gives the beer a nice round mouthfeel and an impressive thick fluffy head. Every beer must have its hops and to make it a real American style IPA we used three kinds of American IPA hops, the delightful Chinook, the unique Cascade and the clean amazing aroma hop Amarillo. To perfect the whole American experience we used an American ale strain. All this results in a well balanced and clean beer suited for every occasion. The bitterness is mild to strong but far from overwhelming there is a fine line between bitter and pleasant and harmonizes perfectly with our selection of malt. There are some sweet fruity notes in the nose, resembling tangerine or sweet oranges. In the taste there are some hints of tangerine, caramel and a citrusy slightly dry Campari flavour.
Icelandic Poverty Aid, as the name implies, is brewed at difficult times in Iceland which is facing its worst financial crisis in its relatively short history. Many argue that the situation is all to blame on one man, the head of the national bank, Mr. Davið Oddson. Mr. Oddson is well known to Icelanders as he has for many years played a central role in running the nation to the ground. The man refuses do resign, though the people of Iceland demand it. So this beer is nIcebrews “aid” to Icelanders in difficult times, an aid in the form of an inspiration and maybe a suggestion in how to solve the Oddson problem once and for all. See what Bjórbókin says about this beer.


------oOo-----