|
Fjórði bjórinn frá Borg brugghús er þessi hér.
Bjartur. Bjór þessi er líkast til bruggaður í
anda belgísks blonds, hann er bjartur og fallegur.
Í nefi er hann frekar látlaus en þó má glöggt finna
ávaxtakeim og belgískt geryfirbragð. Freyðir
ágætlega og heldur froðunnni. Í munni er um
heldur mildan bjór að ræða en þó alls ekki
bragðlausan því það má vel finna ölkeiminn og nokkuð
vel einangrað frútt. Humlar eru í litlu
hlutverki en koma þó til móts við maltið.
Bjórinn verður ögn sætur með þægilegan belgískan
keim sem stafar frá gerinu. Mjög vel lukkaður
bjór og eitthvað sem menn eiga án efa eftir að kunna
vel við. Það má kannski segja að þetta sé
belgískur blond sem tónaður er niður að íslenskum
markaði. Persónulega myndi ég vilja sjá mun
meiri kraft í hann samt. |